fbpx
Fimmtudagur 26.júní 2025
Pressan

Nýr risastjörnusjónauki uppgötvaði 2.104 nýja loftsteina í sólkerfinu á 10 klukkustundum

Pressan
Miðvikudaginn 25. júní 2025 18:30

Glæsileg mynd, sem sjónaukinn tók, af stjörnuþoku.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýlega var mjög öflugur stjörnusjónauki tekinn í notkun í Chile. Á mánudaginn voru fyrstu myndirnar, sem voru teknar með sjónaukanum, birtar og er óhætt að segja að þær séu stórkostlegar.

Sjónaukinn er staðsettur í Vera Rubin-stjörnuskoðunarstöðinni en hún býr yfir stærstu stafrænu myndavél heims og sjónauka sem er 8,4 metrar í þvermál.

Fyrstu myndirnar eru meðal annars af fjarlægum vetrarbrautum og svæðum þar sem stjörnur verða til.

Stjörnuskoðunarstöðin er á toppi Cerro Pachón fjallsins sem er í miðhluta Chile. Þar er næturhimininn sérstaklega skýr.

Myndgæðin eru góð.

 

 

 

 

 

 

Ein af fyrstu myndunum er sett saman úr 678 myndum sem voru teknar á sjö klukkustundum. Þær sýna stjörnuþokur sem eru í mörg þúsund ljósára fjarlægð frá jörðinni.

Stjörnuskoðunarstöðin er einnig útbúin mjög öflugu gagnavinnslukerfi. Á fyrstu tíu klukkustundunum eftir að sjónaukinn var tekinn í notkun, fann hann 2.104 áður óþekkta loftsteina í sólkerfinu okkar.  Braut sjö þeirra liggur nærri jörðinni en enginn þeirra er talin ógna jörðinni eins og staðan er núna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Air India varað við vegna „alvarlegra brota“ á vinnutíma flugmanna

Air India varað við vegna „alvarlegra brota“ á vinnutíma flugmanna
Pressan
Í gær

Kennslukona á 60 ára fangelsi yfir höfði sér – Beitti nemanda kynferðislegu ofbeldi

Kennslukona á 60 ára fangelsi yfir höfði sér – Beitti nemanda kynferðislegu ofbeldi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Brúðkaupið breyttist í blóðbað

Brúðkaupið breyttist í blóðbað
Pressan
Fyrir 3 dögum

Áhrifavaldur hvarf og lögreglu beið ólýsanlegur hryllingur í súpupotti

Áhrifavaldur hvarf og lögreglu beið ólýsanlegur hryllingur í súpupotti