Upplýsingafulltrúi bandarísku ríkisstjórnarinnar, Karoline Leavitt, hefur ítrekað verið sökuð um að hagræða sannleikanum eftir því hentar hverju sinni. Að þessu sinni tókst henni að valda fjaðrafoki með því að fullyrða að Donald Trump hefði verið fyrstur til að koma með slagorðið um að ná fram friði í krafti styrks.
„Enginn þekkir betur hvað það þýðir að ná fram frið í krafti styrks en Trump forseti,“ sagði Leavitt í samtali við FOX-fréttastofuna. „Hann er maðurinn sem fann upp á því slagorði og þeirri utanríkisstefnu og honum tókst að innleiða hana með árangursríkum hætti á fyrra kjörtímabili sínu.“
Netverjar áttu ekki orð. Fyrir það fyrsta hefur frasinn „friður í krafti styrks“ verið notaður í bandarískum stjórnmálum áratugum saman, þar með talið hjá forsetaframbjóðandanum Barry Goldwater árið 1954, en hann kom úr röðum repúblikana. Frasinn var þó gerður ódauðlegur þegar fyrrum Bandaríkjaforseti Ronald Reagan notaði hann ítrekað í valdatíð sinni, en Reagan samdi frasann ekki sjálfur heldur má rekja hann allt aftur til rómverska keisaraveldisins.
Ein skrifar: „Það var reyndar rómverski keisarinn Hadrian sem fann upp á „frið í krafti styrks“ ekki Donald Trump.
Annar kallar Leavitt fáránlega. „Leavitt er fáránleg – annaðhvort ótrúlegur bjáni eða ótrúlegur lygari. „Friður í krafti styrks“ var slagorð 8. deildar flughersins. Barry Goldwater notaði frasann í kosningaauglýsingum árið 1965. Og frægast var það þegar Reagan notaði þetta sem slagorð. Trump fann ekki upp á þessu.“
Margir benda á að þetta sé sérstaklega óforskammað þar sem kjósendur Reagan séu margir enn á lífi og muni vel eftir þessum frasa. Það sé að verða þreytandi að sjá ríkisstjórnina skreyta sig með stolnum fjöðrum.