Þjófnaðurinn átti sér stað í San Francisco fyrir þremur árum og hefur verið mikil ráðgáta síðan. Þjófarnir stálu skartgripunum úr verðmætaflutningabíl þegar akstur hans var stöðvaður í Lebec í Kaliforníu. Annar öryggisvarðanna lagðist til svefns í bílnum en hinn fór að fá sér að borða.
Þjófarnir stálu 24 pokum úr bílnum en í þeim voru skartgripir, eðalsteinar og lúxusúr. BBC skýrir frá þess og segir að í ákærunni komi ekki fram hvernig þjófunum tókst að komast inn í verðmætaflutningabílinn.
Hins vegar kemur fram að einn hinna ákærðu hafi fylgst með skartgripasýningu nærri San Francisco í nokkra daga 2022 og hafi síðan í félagi við félaga sína stolið pokunum 24 úr bílnum snemma að morgni 11. júlí 2022.
Þeir eltu bílinn tæplega 500 kílómetra frá San Mateo til Lebec. Þar stálu þeir pokunum sem innihéldu skartgripi, eðalmálma og lúxusúr að verðmæti um 100 milljóna dollara.
Þjófarnir notuðu engin vopn.
Hluti af þýfinu fannst þegar húsleitir voru gerðar á mánudaginn.