En það er hægt að fjarlægja rauðvínsbletti án þess að nota hreingerningarefni.
Það sem gerir rauðvín svo erfitt viðureignar, þegar það lendir í fötum, eru náttúrulegu litarefnin í þrúgunum. Þau bindast hratt við trefjar í fatnaði og þegar þau hafa náð að festa sig, og sérstaklega ef þau ná að þorna, getur það virkað eins og bletturinn sé kominn til að vera að eilífu.
En þú þarft ekki að hlaupa og sækja Vanish blettaeyði því það eina sem þú þarft er sjóðandi vatn og smá hugvit. Aðferðin er svo einföld að það er eiginlega erfitt að trúa að hún virki en það gerir hún, sérstaklega ef rauðvínið hefur sullast á bómull eða hör.
Svona gerir þú:
Strekktu svæðið, sem bletturinn þekur, yfir hitaþolna skál eða vask.
Sjóddu vatn.
Helltu sjóðandi vatninu beint á blettinn.
Síðan fylgistu með hvernig bletturinn hverfur eða það verður að minnsta kosti mun auðveldara að fjarlægja hann.
Hitinn gerir að verkum að litarefnið sleppir takinu á trefjunum og hreyfing vatnsins skolar litnum í burtu áður en hann nær að festast alveg. Það þarf því að bregðast hratt við, því þeim mun lengur sem bletturinn fær að standa óhreyfður, þeim mun erfiðara verður að fjarlægja hann.
Þetta ráð virkar vel á sterk efni á borð við gallaefni, skyrtur og bómullardúka en ekki nota hana ef það sullast í silki, ull eða gerviefni sem þola ekki mikinn hita. Í þeim tilfellum er hætta á að þú valdir meira tjóni.