Elon Musk hefur látið af störfum fyrir bandarísku ríkisstjórnina. Þetta kom fáum á óvart enda hafði Musk verið ráðinn inn sem sérstakur verktaki en samkvæmt lögum mega slíkir aðeins starfa fyrir hið opinbera í 130 daga. Hins vegar greinir Telegraph nú frá því að Musk hafi lýst yfir vilja til að starfa áfram, en honum hafi verið hafnað.
Mögulega skýrir það hvers vegna Musk hefur undanfarna daga farið hörðum orðum um fjárlagafrumvarp bandarísku ríkisstjórnarinnar en hann kallar það algjöran horbjóð. Forsetinn mun vera nokkuð vonsvikinn með þennan viðsnúning ríkasta manns heims enda er Musk með milljónir fylgjenda á samfélagsmiðlum og er auk þess nokkuð vinsæll meðal bandarískra hægrimanna. Musk hefur gagnrýnt fjárlagafrumvarpið fyrir að hækka skuldir ríkissjóðs gífurlega og fyrir að auka útgjöld verulega.
Meðal þess sem er lagt til í frumvarpinu er að ríkið hætti að niðurgreiða kaup á rafbílum með því að veita afslátt af sköttum, en Elon Musk á eina vinsælustu rafbílaframleiðslu heims, Teslu. Eins hefur Trump nú hætt við að skipa vin Musk, Jared Isaacman, sem næsta yfirmann NASA, en heimildarmenn sem hafa rætt við fjölmiðla segja að Musk hafi undanfarið kvartað sáran yfir því að hafa varið milljörðum í kosningabaráttu Trump bara svo forsetinn gæti dregið hann og Isaacman á asnaeyrunum. Musk er eins stofnandi og eigandi SpaceX sem hefur gert fjölda samninga við NASA. Isaacman er með tengsl við SpaceX.
„Hringið í þingmenn ykkar og kjörna fulltrúa. Það er ekki í lagi að keyra Bandaríkin í þrot,“ skrifaði Musk á X (áður Twitter) til 220 milljón fylgjenda sinna. „DREPUM FRUMVARPIÐ.“
Því er einnig haldið fram að Musk sé nú að freista þess að snúa við miklum halla sem hefur orðið á rekstri Teslu síðan hann hóf afskipti af stjórnmálum. Með því að tala gegn Trump gæti Tesla mögulega aftur hlotið náð í augum vinstrimanna, sem eru gjarnan umhverfissinnaðir og því líklegri en hægrimenn til að kaupa rafbíla.
The Wall Street Journal greinir frá því að Trump sé við það að missa þolinmæðina yfir þessari framkomu Musk. Formaður þingflokks Repúblikana, Mike Johnson, hefur eins lýst yfir vonbrigðum vegna ummæla Musk.
„Við áttum frábærar, mjög vinalegar og mjög innihaldsríkar samræður. Tuttugu og fjórum klukkustundum síðar tekur hann 180 gráðu viðsnúning og talar gegn frumvarpinu. Og það kom mér að óvörum, til að vera hreinskilinn.“
Axios heldur því fram að líklegar séu fjórar ástæður fyrir því að Musk sé að ráðast á fjárlagafrumvarpið. Í fyrsta lagi sé þar verið að afnema skattaafslátt vegna rafbílakaupa sem muni bitna með beinum hætti á Tesla. Í öðru lagi hafi Musk óskað eftir því að fá að vinna áfram fyrir ríkisstjórnina en verið hafnað. Í þriðja lagi hafi Musk krafist þess að hið opinbera notaði gervihnetti hans, Starlink, í flugumferðastjórnun, en því var hafnað. Loks hafi Trump óvænt hætt við að skipa Isaacman sem yfirmann NASA.
Þáttastjórnendur skemmtiþáttanna Jimmy Kimmel Live og The Late Show hafa velt því fyrir sér hvort að það sé ekki önnur ástæða þarna að baki. Musk hefur nýlega verið sakaður um óhóflega fíkniefnaneyslu. Gæti mögulega verið að hann sé hættur að taka inn ketamín?