fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Pressan

Systkin dæmd í fangelsi fyrir morð vegna kannabisskuldar

Pressan
Fimmtudaginn 22. maí 2025 21:30

Ishaia og Mya Marsh. Mynd:Lögreglan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mya Marsh, 23 ára, og 21 árs bróðir hennar, Isaiah Marsh, voru nýlega dæmd í 20 ára fangelsi fyrir að hafa myrt hinn 21 árs Minister Enfrence. Ástæðan fyrir morðinu voru deilur þeirra um skuld upp á sem nemur rúmlega 30.000 íslenskum krónum vegna kaupa á kannabisi.

Systkinin voru dæmd í 20 ára fangelsi að lágmarki fyrir að hafa ráðist á Enfrence með hníf og orðið honum að bana.

Mya, sem starfaði í banka, ætlaði að kaupa kannabis af Enfrence í Kings Norton í Birmingham. Hún fór til fundar við hann vopnuð hníf í byrjun nóvember á síðasta ári.

Sky News segir að í dómsorði komi fram að Mya hafi átt upptökin að átökum við Enfrence vegna fíkniefnaskuldar. Hún hafi síðan hringt í Isaiah og fengið hann til að koma sér til aðstoðar. Hann hafi gert grimmdarlega árás á Enfrence sem lá varnarlaus á bakinu á gólfinu. Hafi Isaiah ætlað sér að bana honum.

Enfrence var stunginn minnst 12 sinnum í líkamann, handleggi, hendur og höfuðið. Hann náði að flýja en hné skömmu síðar örendur niður.

Dómarinn sagði að það hafi verið „viðbjóðslegt“ að þurfa að horfa á upptöku á árásinni úr eftirlitsmyndavél. Á upptökunni sést Mya rétta bróður sínum hníf á meðan á árásinni stóð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Settu eitt kíló af salti undir rúmið í nótt – Þetta er ástæðan

Settu eitt kíló af salti undir rúmið í nótt – Þetta er ástæðan
Pressan
Í gær

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sérfræðingur segir þetta atvinnugreinarnar þar sem mestar líkur séu á að makinn haldi framhjá þér

Sérfræðingur segir þetta atvinnugreinarnar þar sem mestar líkur séu á að makinn haldi framhjá þér
Pressan
Fyrir 2 dögum

Trixið sem fagmenn nota til að sleppa við rendur eftir rúðuþurrkurnar

Trixið sem fagmenn nota til að sleppa við rendur eftir rúðuþurrkurnar