fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Pressan

Fór í kynlífsklúbb og lamaðist

Pressan
Miðvikudaginn 3. apríl 2024 04:10

Þetta endaði skelfilega hjá þeim. Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það getur verið hættulegt að fara í kynlífsklúbb og er þá ekki bara hætt við að fólk smitist af kynsjúkdómum eða verði fyrir meiðslum við kynlífsiðkun.

Þetta getur bresk kona borið vitni um en hún lamaðist þegar hún hoppaði út í sundlaug í kynlífsklúbbi í Blackpool. Hún var drukkin þegar þetta gerðist.

Mirror segir að konan hafi nú höfðað mál á hendur breska heilbrigðiskerfinu og krefjist milljóna punda í bætur vegna þess að hún hafi ekki hlotið rétta meðhöndlun í kjölfar slyssins.

Slysið átti sér stað 2021 þegar konan stakk sér ofan í innanhússlaug í kynlífsklúbbnum. Höfuð hennar lenti í botninum og hálsbrotnaði hún og hlaut varanlegan skaða á hryggjarsúlunni.

Konan segir að aðgerðir viðbragðsaðila á vettvangi hafi aðeins orðið til þess að gera ástand hennar verra.

Hún lá á sjúkrahúsi í sex mánuði. Meiðsli hennar eru svo alvarlega að hún hefur verið úrskurðuð óvinnufær það sem hún á eftir ólifað.

Hún krefst 10 milljóna punda, það svarar til um 1,7 milljarða íslenskra króna, í bætur frá breska heilbrigðiskerfinu NHS. Hún heldur því fram að vegna rangrar meðferðar á slysstað hafi meiðsli hennar orðið mun alvarlegri en ella og valdi því að hún geti aldrei aftur gengið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var
Pressan
Fyrir 2 dögum

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Orðrómar um rússneskt lýðveldi vekja áhyggjur í Eistlandi

Orðrómar um rússneskt lýðveldi vekja áhyggjur í Eistlandi
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Svörtu ekkjunni“ tókst ætlunarverk sitt í fjórðu tilraun – „Ekki segja neitt við hana“

„Svörtu ekkjunni“ tókst ætlunarverk sitt í fjórðu tilraun – „Ekki segja neitt við hana“