fbpx
Þriðjudagur 17.júní 2025
Pressan

„Svo fékk ég símtal sem breytti öllu“

Pressan
Mánudaginn 29. apríl 2024 14:30

Galena virkaði hálf undrandi á þessu öllu saman.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óhætt er að segja að starfsmaður Amazon í Kaliforníu hafi vart vitað hvaðan á sig stóð veðrið þegar hann opnaði skilasendingu frá viðskiptavini á dögunum. Í kassanum, innan um nokkur skópör, var nefnilega sprellifandi köttur.

Viðskiptavinurinn, kona að nafni Carrie Clark, hafði keypt fimm pör af skóm en ekki litist nógu vel á þá. Ákvað hún að skila sendingunni og senda hana til baka. Fór hún frá heimili hennar í Utah og alla leið til Kaliforníu og tók ferðalagið nokkra daga.

Um svipað leyti og sendingin fór af stað, þann 10. apríl síðastliðinn, hvarf heimiliskötturinn Galena sporlaust að því er virtist.

Carrie og eiginmaður hennar leituðu að Galenu næstu daga en hún fannst hvergi. „En svo fékk ég símtal sem breytti öllu,“ segir Carrie við BBC en það var frá dýralækni í Kaliforníu sem sagðist vera með Galenu hjá sér. Hafði læknirinn skannað örmerki á henni.

„Ég hélt fyrst að þetta væri hrekkur,“ segir Carrie.

Starfsmaður Amazon, Brandy, sem starfar í deild þar sem tekið er á móti skilasendingum opnaði pakkann og kom Galenu í hendur dýralæknis í kjölfarið. Virðist hún hafa laumað sér ofan í kassann áður en honum var lokað og hann sendur til Kaliforníu.

Kettir eru nokkuð harðir af sér og virðist Galena vera við ágæta heilsu þrátt fyrir þetta langa ferðalag. Hún var þyrst og svöng en að öðru leyti ágætlega hress.

Carrie og eiginmaður hennar flugu til Los Angeles daginn eftir að hafa fengið símtalið frá dýralækninum og sóttu Galenu. Er hún nú komin heim til Utah eftir þessa miklu svaðilför.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona sefur þú betur þegar það er heitt

Svona sefur þú betur þegar það er heitt
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kjarnorkustríð á milli Bandaríkjanna og Rússlands myndi bana 5 milljörðum manna

Kjarnorkustríð á milli Bandaríkjanna og Rússlands myndi bana 5 milljörðum manna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hún skellti sér í sturtu og skildi börnin tvö eftir eftirlitslaus – Hefði betur sleppt því

Hún skellti sér í sturtu og skildi börnin tvö eftir eftirlitslaus – Hefði betur sleppt því
Pressan
Fyrir 2 dögum

Tíu klassísk mistök sem karlar gera á fyrsta stefnumótinu (og hvernig er hægt að forðast þau)

Tíu klassísk mistök sem karlar gera á fyrsta stefnumótinu (og hvernig er hægt að forðast þau)