Íbúar í bænum Coon Rapids í Minnesota ríki í Bandaríkjunum hafa þurft að búa við miklar hremmingar af völdum kalkúns. Um er að ræða villtan kalkún sem hefur hrellt íbúa í hjólhýsagarði bæjarins í meira en heilt ár.
Í umfjöllun People um málið kemur fram að fuglinn sé árásargjarn og að hann hafi fyrst skotið upp kollinum í kringum þakkargjörðarhátíðina árið 2021. Síðan þá hefur hann ráðist á fólk, elt bíla og jafnvel reynt að komast inn á heimili fólks.
Kalkúnninn virðist hafa eitthvað sérstaklega á móti einum íbúanum, Rachel Gross. Rachel fullyrðir að kalkúnninn hafi komið fyrr, eða um sumarið árið 2021, og að hann hafi komið ásamt fullt af öðrum kalkúnum. Hún segir hina kalkúnana hafa farið svo nokkrum vikum seinna en að þessi hafi orðið eftir.
„Hann ræðst á mig á hverjum degi,“ segir hún um kalkúninn. „Hann eltir mig, fer upp stigana hjá mér og reynir að komast inn í húsið mitt. Þegar ég fer í bílnum mínum þá eltir hann bílnum mínum.“
Í myndbandi sem tekið var af kalkúninum sést hvernig kona nokkur reynir að hræða hann í burtu með því að úða vatni á hann, án árangurs. „Hann er óhræddur við vatn og að því virðist líka fólk,“ segir í umfjöllun WCCO á CBS um málið.
Bæjarbúar hafa því tekið upp á því að vera vopnaðir kústum og golfkylfum þegar þeir ganga um bæinn. Jafnvel börn eru með prik í hendi sér þegar þau ganga út á strætisvagnastoppistöðvar.
Rachel segist einnig vera á varðbergi þegar hún fer út af heimili sínu en þá klæðist hún öryggisgleraugum. „Ég er alltaf frekar stressuð og kvíðin,“ segir hún. „Þessi kalkúnn er bókstaflega búinn að taka yfir líf okkar.“