CBS News skýrir frá þessu og hefur eftir Jim Skinner, lögreglustjóra í Collin County í Texas, að þrátt fyrir að lögreglan hafi vonast til að niðurstaða leitarinnar að Kelley yrði önnur, þá sé hann þakklátur fyrir að lögreglunni hafi tekist að finna lík hennar.
Lík hennar fannst á miðvikudaginn. Það hafði verið grafið í Grand Prairie, sem er hverfi í Dallas.
Lögreglan hefur handtekið 32 ára karlmann sem er grunaður um að hafa myrt hana. Þau byrjuðu að stinga saman nefjum í sumar að því að talið er.
Maðurinn skýrði frá því við yfirheyrslu að hann hafi notað rangt nafn í samskiptum sínum við Kelley en að hún hafi síðan komist að rétta nafni hans og að hann væri kvæntur.
Lögreglan er sögð hafa komist yfir upptökur af símtölum á milli þeirra tveggja, þar sem Kelley er sögð hafa hótað manninum að hún myndi skýra eiginkonu hans frá framhjáhaldinu.
Eftir það hvarf hún.
Daginn eftir að tilkynnt var um hvarf hennar, fannst bíll hennar brunninn. Í kjölfarið var maðurinn handtekinn, grunaður um íkveikju og mannrán.
Það var síðan út frá staðsetningargögnum síma hans sem lögreglan fann staðinn þar sem Kelley fannst grafin.