fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Pressan

Hlutirnir hafa snúist við – Smygla fólki frá Evrópu

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 28. apríl 2020 08:00

Mynd úr safni. Mynd:Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar flóttafólk og farandfólk kemur til Evrópu eru það Spánn eða Ítalía sem oft eru fyrsti viðkomustaðurinn. Bæði löndin hafa farið illa út úr COVID-19 faraldrinum og þar eru strangar reglur í gildi þessar vikurnar sem hefta frelsi fólks mikið. Þetta kemur illa niður á svokallaðri svartri atvinnustarfsemi sem gerir flóttafólki erfitt fyrir með að fá vinnu. Nú hafa hlutirnir því snúist við og margir eru farnir að greiða smyglurum fyrir að flytja þá frá Evrópu.

Berlingske skýrir frá þessu. Fram kemur að fólkið geti ekki heldur reynt að komast til annarra Evrópuríkja því landamæri flestra ríkja eru nú lokuð út af heimsfaraldrinum. Þá er ekki auðvelt að komast yfir til Marokkó í Afríku því þar eru strangar reglur í gildi vegna faraldursins, svo strangar að marokkóskir ríkisborgarar fá ekki einu sinni að koma til landsins á löglegan hátt.

Allt þetta virðist gera að verkum að flótta- og farandfólk vill nú sumt hvert komast frá Evrópu og er farið að greiða smyglurum fyrir að komast frá Spáni til Marokkó. Þetta kemur fram í skýrslu ESB sem El País hefur fengið aðgang að. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að smyglararnir hafi sýnt ótrúlegan sveigjanleika og aðlögunarhæfni í starfsemi sinni og skipuleggi nú ferðir fyrir flótta- og farandfólk frá Marokkó aftur til síns heima frá Spáni.

Nefnd eru dæmi um að siglt hafi verið með fólk á hraðskreiðum uppblásnum bátum yfir Miðjarðarhaf til Marokkó. Hver farþegi greiðir að sögn 5.400 evrur fyrir að komast frá Evrópu til Marokkó. Þeir sem vilja komast hina leiðina, frá Marokkó til Evrópu, þurfa aðeins að greiða 400 til 1.000 evrur.

Fjölmiðlar í Alsír segja að einnig séu dæmi um að fólk sé farið að snúa aftur þangað frá Evrópu með aðstoð smyglara. Einnig er vitað að slíkar ferðir hafi verið farnar frá Ítalíu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Í gær

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 3 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?