fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Sprengjan tifar undir Trump og lífi hans til þessa – Verður hvellurinn á morgun?

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 26. febrúar 2019 22:30

Donald Trump er iðinn við að koma sér í vanda.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á morgun verður Donald Trump, Bandaríkjaforseti, í Víetnam þar sem hann mun funda með Kim Jong-un, einræðisherra í Norður-Kóreu, um kjarnorkuvopnamál Norður-Kóreu. En á sama tíma munu pólitískir andstæðingar Trump heima í Bandaríkjunum reyna að gera forsetanum skráveifu með því að hamra á upplýsingum um einkalíf hans sem og viðskiptalíf.

Fyrrum lögmaður Trump, Michael Cohen, kemur fyrir þingnefnd, undir forystu demókrata, í Washington D.C. á morgun og á morgun mun Robert Mueller, sérstakur saksóknari, sem rannsakar meint tengsl forsetaframboðs Trump við Rússa, hugsanlega kynna niðurstöður rannsóknarinnar sem hefur staðið yfir í tvö ár.

„Miðvikudagurinn getur orðið eins og sprengja undir Donald Trump og lífi hans. Eftir fund númer tvö með Kim Jong-un telur Trump sjálfur að tilnefna eigi hann til Friðarverðlauna Nóbels. En á meðan forsetinn leiðir Jong-un er fræðilega mögulegt að synir hans verði handteknir í Washington D.C. Yfirheyrslan yfir Michael Cohen getur orðið sú vandræðalegasta á ferli forsetans.“

Sagði þáttastjórnandinn Rachel Maddow í þætti sínum The Rachel Maddow Show á NSNBC.

Jennifer Rubin, blaðamaður hjá Washington Post, er sömu skoðunar og Maddow og telur tímasetninguna enga tilviljun.

„Þetta er eins og að hafa Óskarsverðlaunin, Ofurskálina og kosningar á sama deginum. Trump vonast auðvitað til að beina athyglinni frá yfirheyrslunum yfir Cohen. Þetta verður barátta um áhorfendur og ekki síst athygli fjölmiðla.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Ný veira gæti borist úr matnum í augu

Ný veira gæti borist úr matnum í augu
Pressan
Í gær

Viðvörun móður eftir að eins árs barn hlaut eitrun af algengri garðplöntu

Viðvörun móður eftir að eins árs barn hlaut eitrun af algengri garðplöntu
Pressan
Í gær

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig
Pressan
Í gær

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman
Pressan
Í gær

Flugvél hrapaði í íbúahverfi á Tenerife

Flugvél hrapaði í íbúahverfi á Tenerife
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vilja fangelsa meintan morðingja Madeleine McCann á ný

Vilja fangelsa meintan morðingja Madeleine McCann á ný
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hylltur sem hetja eftir hryðjuverkaárás – nú sakaður um árás á föður sinn

Hylltur sem hetja eftir hryðjuverkaárás – nú sakaður um árás á föður sinn