Á fjórða tímanum í nótt varð sprenging í stigagangi fjölbýlishúss við Mariatorget í Stokkhólmi. Skemmdir urðu á stigaganginum en enginn meiddist. Lögreglan hefur lokað svæðinu af fyrir almenningi og sprengjusérfræðingar eru nú að störfum í húsinu.
Lögreglan veit ekki til þess að neinum íbúa hússins hafi verið hótað og hefur engan grunaðan um verknaðinn.