fbpx
Þriðjudagur 17.júní 2025
Pressan

Gurra grís ógnar kínverskum yfirvöldum

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 5. maí 2018 07:30

Gurra grís.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kínversk yfirvöld hafa miklar áhyggjur af teiknimyndunum um Gurru grís (Peppa Pig) en það eru vinsælar breskar teiknimyndir fyrir yngstu börnin. Grísafjölskyldan viðkunnanlega er talin ógna kínversku stjórninni og völdum hennar. Þessu hafa ritskoðarar kommúnistaflokksins að sjálfsögðu brugðist harkalega við og hafa nú fjarlægt um 30.000 myndskeið með Gurru grís og hasstaggið #PeppaPig er einnig horfið af sjónarsviðinu í Kína.

Kínverski ríkisfjölmiðillinn The Global Times skýrir frá þessu. Þar segir að öll myndskeið með Gurru grís hafi nú verið fjarlægð af hinum vinsæla Douyin vef.

The Guardian segir að þessi ritskoðun sé tilkomin vegna mikilla vinsælda Gurru en hún er orðinn svo vinsæl í Kína að fólk notar hana mikið til að skapa sína eigin alþýðumenningu. En það er einmitt það sem fer fyrir brjóstið á flokknum einráða því þessi nýja alþýðumenning, sem er byggð á Gurru grís, fellur ekki að kröfum flokksins.

Fólk hefur birt myndskeið á Douyin þar sem það sýnir húðflúr eða ýmsan varning tengdan Gurru grís. Það eru þessi myndbönd sem hafa nú verið fjarlægð.

Gurra grís og félagar hennar eru sagðar vera latar týpur sem ráfa stjórn- og stefnulaust um sem sé algjör mótsögn við þá ungu kynslóð sem kommúnistaflokkurinn vill ala upp.

Gurra grís var kynnt til sögunnar í Kína fyrir þremur árum þegar ríkissjónvarpið CCTV byrjaði að sýna þætti um hana. Vinsældirnar hafa verið ótrúlegar og nú er verið að reisa tvo Gurru grís skemmtigarða í Peking og Shanghai.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona sefur þú betur þegar það er heitt

Svona sefur þú betur þegar það er heitt
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kjarnorkustríð á milli Bandaríkjanna og Rússlands myndi bana 5 milljörðum manna

Kjarnorkustríð á milli Bandaríkjanna og Rússlands myndi bana 5 milljörðum manna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hún skellti sér í sturtu og skildi börnin tvö eftir eftirlitslaus – Hefði betur sleppt því

Hún skellti sér í sturtu og skildi börnin tvö eftir eftirlitslaus – Hefði betur sleppt því
Pressan
Fyrir 2 dögum

Tíu klassísk mistök sem karlar gera á fyrsta stefnumótinu (og hvernig er hægt að forðast þau)

Tíu klassísk mistök sem karlar gera á fyrsta stefnumótinu (og hvernig er hægt að forðast þau)