fbpx
Laugardagur 14.júní 2025
Neytendur

Leynist dauðagildra á þínu heimili?

Talið að allt að sex þúsund húsbruna megi rekja til þurrkara

Einar Þór Sigurðsson
Miðvikudaginn 17. febrúar 2016 23:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Talið er að allt að sex þúsund húsbruna á síðustu sex árum í Bretlandi megi rekja til gallaðra þurrkara. Breskir fjölmiðlar hafa fjallað ítarlega um þetta síðustu daga, en í umfjöllun Daily Mail er meðal annars fjallað um dauðaslys sem hafa orðið sem rekja má til gallaðra þurrkara.

Aðeins eru nokkrir dagar síðan eldur kom upp á heimili hinnar þrítugu Stacey Simpson. Eftir að hafa sett þurrkarann af stað fann hún einkennilega lykt koma frá þvottahúsinu. Þegar hún fór og gáði sá hún eldtungurnar standa úr þurrkaranum. Hún hljóp til tveggja dætra sinna og forðaði sér út úr húsinu áður en hún hringdi á slökkvilið.

Í umfjöllun breska blaðsins Mirror kemur fram að þrjú banaslys hafi orðið eftir að eldur kom upp í þurrkurum á síðustu árum. Þá hafa 300 slasast, sumir alvarlega. Spjótin beinast að þremur framleiðendum þurrkara; Hotpoint, Creda og Indesit sem framleiddir voru á árunum 2004 til 2015. Öll fyrirtækin eru í eigu móðurfyrirtækisins Whirlpool sem keypti þau árið 2014.

Í haust sá Mannvirkjastofnun Íslands ástæðu til að vera við þurrkurum frá þessum framleiðendum, það er Hotpoint, Creda og Indesit. „Hættan stafar af því að í einhverjum tilvikum getur ló komist í snertingu við hitald (hitaelement) og valdið bruna. Þurrkararnir voru framleiddir frá því í apríl 2004 þar til í september 2015 og voru seldir víða um Evrópu. Mannvirkjastofnun hafa ekki borist upplýsingar um hvort viðkomandi þurrkarar hafi verið seldir á Íslandi, en líkur eru þó á að svo sé,“ segir í frétt Mannvirkjastofnunar, en einföld leit á Google leiðir í ljós að þurrkarar frá Hotpoint og Creda hafi verið seldir hér á landi á síðustu árum.

Ef þú átt þurrkara frá Creda eða Indesit geturðu athugað hvort þinn þurrkari sé gallaður með því að smella hér. Þeir sem eiga þurrkara frá Hotpoint geta smellt hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Neytendur
24.07.2020

Ertu að fara í sumarfrí? Svona minnkar þú líkur á innbroti

Ertu að fara í sumarfrí? Svona minnkar þú líkur á innbroti
EyjanNeytendur
24.04.2020

Matvöruverð hefur hækkað umtalsvert frá upphafi Covid-19

Matvöruverð hefur hækkað umtalsvert frá upphafi Covid-19
EyjanNeytendur
12.02.2020

SS minnkar umbúðirnar en verðið hækkar – „Hættur að kaupa“

SS minnkar umbúðirnar en verðið hækkar – „Hættur að kaupa“
Neytendur
09.02.2020

Hvað er málið með örorkubætur?

Hvað er málið með örorkubætur?
EyjanNeytendur
29.07.2019

Icelandair hækkaði fargjaldið í miðri bókun um 42 þúsund krónur – „Er græðgin gengin af göflunum?“

Icelandair hækkaði fargjaldið í miðri bókun um 42 þúsund krónur – „Er græðgin gengin af göflunum?“
EyjanNeytendur
23.07.2019

Kjúklingaáleggið frá Kjarnafæði sagt innihalda 80% grísakjöt – „Skandall drepinn í fæðingu“

Kjúklingaáleggið frá Kjarnafæði sagt innihalda 80% grísakjöt – „Skandall drepinn í fæðingu“
EyjanNeytendur
10.05.2019

Launafólk hefur axlað ábyrgð – Nú er komið að fyrirtækjunum: „Vertu á verði – eftirlit með verðlagi“

Launafólk hefur axlað ábyrgð – Nú er komið að fyrirtækjunum: „Vertu á verði – eftirlit með verðlagi“
EyjanNeytendur
06.05.2019

Bíleigendur greiða nær alla útblástursskatta á Íslandi en eru einn minnsti mengunarvaldurinn

Bíleigendur greiða nær alla útblástursskatta á Íslandi en eru einn minnsti mengunarvaldurinn