fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Matur

Sósan sem gerði allt vitlaust – Ómótstæðileg kóríandersósa sem tryllir bragðlaukana og verður ómissandi

Sjöfn Þórðardóttir
Mánudaginn 16. janúar 2023 11:29

Kóríandersósan verður fallega fagurgræn á litinn, með silkikenndri áferð og gaman er að bera hana fram í fallegu glasi á fæti og skreyta með kóríanderblöðum. MYND AÐSEND.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þetta er sósan sem gerði allt vitlaust á matarvef Fréttablaðsins á síðasta ári enda er þetta engin venjuleg sósa. Þú átt eftir að elska þessa og hún verður ómissandi með mörgum réttum.

Kóríandersósan er fullkomin með hvers kyns salötum,  fiskréttum, falafel buffi eða falafel bollum, kjúklingi, mexíkóskum- og grænmetisréttum, ekki síst með taco. Í raun með hverju því sem ykkur finnst gott með kóríander, meira segja með grilluðu kjöti og fisk. Í þessari sósu eru engar mjólkurvörur né olíur og hún er glúten- og sykurlaus og án soja. Heiðarleg og meinholl sósa sem bragðlaukarnir elska.

Kóríandersósan ómótstæðilega

¾ bolli af hráum kasjúhnetum (lífræna enn betra)

½ bolli af ferskum kóríander laufblöðum

1 stk. hvítlaukur, marinn (þessir í körfunum)

½ bolli af vatni – eða eins og ykkur finnst þurfa

3 msk. af ferskum lime safa, kreista úr lime

2 -3 msk. af avókadó

½ tsk af fínu sjávarsalti

½ tsk af hvítlauksdufti

Byrjið á því að setja kasjúhneturnar í skál og hellið sjóðandi vatni yfir þær. Passið að vatnið nái yfir allar hneturnar. Látið liggja í vatninu í klukkutíma eða í volgu vatni yfir nótt. Hreinsið hnetur og hellið vatni af. Bætið síðan öllu hnetumaukinu og öðru hráefni í góðan blandara. Blandið vel. Ef hneturnar og hitt hráefnið er ekki að blandast nógu vel saman að þínum smekk þá má bæta örlitlu af vatni saman við. Berið sósuna fram í fallegri skál eða í glasi á fæti og skreytið með kóríanderblöðum. Hún verður fislétt og fallega fagurgræn á litinn.

*Allt hráefnið fæst í Bónus.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa