fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Matur

Syndsamlegur góður marengs með karamellu & eplum – það má leyfa sér

Sjöfn Þórðardóttir
Fimmtudaginn 25. ágúst 2022 10:47

Hér er á ferðinni syndsamlega góður marengs með karamellu og eplum úr smiðju Guðrúnar Eðvalds sælkera sem heldur úti síðunni Döðlur og smjör. MYNDIR/GUÐRÚN ÝR EÐVALDSDÓTTIR.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þessi er algjört sælgæti og þess virði að leyfa sér að njóta. Hér er á ferðinni syndsamlega góður marengs með karamellu og eplum úr smiðju Guðrúnar Ýrar Eðvalds sælkera sem heldur úti síðunni Döðlur og smjör. „Ég verð að segja að hann bragðaðist einstaklega vel enda hugmynd sem ég var búin að vera hugsa lengi og hugsaði að þetta geti gengið vel saman. Að þessu sinni rúllaði ég marengsinn upp í rúllu og hann verður alveg svolítið messí hjá manni ef ég má sletta svo það er einnig lítið mál að gera hann líkt og klassískan marengs með tveimur botnum og fyllingu á milli – Ég ætla að prófa það næst. En marengsrúllan er skemmtilegt tvist á marengsinn svo mæli líka alveg með að þið prófið það.“

Líka fyrir klaufa

„Svo ætla ég ekkert að hræða ykkur, þið getið að sjálfsögðu keypt karamellusósu út í búð og flýtt fyrir ykkur með því. En ég hef verið einstaklega klaufsk við að útbúa karamellu í gegnum tíðina og mér hefur reynst best að gera hana með sykursíróps grunni eins og er hér, svo ef þú ert klaufi eins og ég þá mæli ég með að þú prófir þessa.“

Marengs

4 eggjahvítur

220 g sykur

Stillið ofn á 160°C. Hrærið saman eggjahvítum og sykri þangað til blandan er orðin stíf. Dreifið marengsnum yfir bökunarpappírsklædda plötu, gott er að miða við að reyna fylla út í bökunarpappírinn með u.þ.b. cm í kant. Eða skipta blöndunni í tvennt og gera tvo u.þ.b. 20 cm hringi á bökunarpappír. Bakið í 25-30 mínútur. Ef þið eruð að gera rúllu, þá er gott að taka bökunarpappír og viskastykki og leggja yfir marengsinn og rúlla honum upp meðan hann er volgur og leyfa honum að kólna, þannig nær hann að halda forminu.

Karamellusósa

200 g sykur

50 ml vatn

100 ml rjómi

50 g smjör

Setjið sykur og vatn saman í pott á miðlungshita. Leyfið blöndunni að malla án þess að vera að hræra í henni þangað til að allur sykurinn er bráðinn, fylgist með þegar hún fær á sig gylltan lit. Þegar hún hefur fengið á sig lit er gott að slökkva undir og bæta rjómanum saman við og hræra á meðan. Þá er smjörinu blandað saman við og þá ætti karamellan að vera klár. Hellið í krukku sem hægt er að loka og leyfið að kólna.

Fylling

2 epli

2 msk. vatn

½ tsk. kanill

2 msk. karamella

1 pk karamellubúðingur

250 ml mjólk

250 ml rjómi

Skrælið eplin, skerið í smáa bita og setjið í pott á miðlungsháan hita ásamt smá vatni og kanil. Leyfið eplunum að sjóða í 5-10 mín, gott er að hafa smá bit í þeim. Bætið karamellusósunni saman við í lokin og hrærið saman. Setjið í skál og leyfið að kólna. Blandið búðingsduftinu saman við 250 ml mjólk og leyfið að stífna. Þeytið rjómann á meðan og blandið síðan saman. Þá er bara að taka fram marengsinn og dreifa karamellurjómanum yfir, þá næst er eplunum sáldrað yfir. Rúllið upp eða setjið seinni marengsinn ofan á. Leyfið marengsnum að taka sig í kæli í minnst 2-3 klukkustundir.

Njótið vel, það má svo sannarlega leyfa sér, það er að koma helgi.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa