fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Matur

„Þeir sem voru að hafa áhyggjur af brotthvarfi Krispy Kreme geta núna andað léttar“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Laugardaginn 13. júlí 2019 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eygló Harðardóttir, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, söðlaði um fyrir stuttu og fór í matreiðslunám. Hún nýtur sín á nýjum starfsvettvangi og hefur samhliða honum opnað Facebook-síðuna Eygló eldar, þar sem hún gefur lesendum spennandi, skemmtilegar og nýstárlegar uppskriftir.

Eygló er einstaklega hrifin af kartöflum og gefur lesendum DV tvær uppskriftir að réttum þar sem gamla, góða jarðeplið er aðalstjarnan.

Bestu afgangarnir

Nýbakaðir og ilmandi kleinuhringir? Hljómar vel, en hvað með heimatilbúna, nýbakaða og ilmandi kartöflukleinuhringi í hvítu flórsykurskýi? Þeir sem voru að hafa áhyggjur af brotthvarfi Krispy Kreme geta núna andað léttar og bakað sína eigin kleinuhringi, og nýtt allar kartöflurnar sínar í leiðinni.
Lofa að þetta voru bestu afgangar sem ég hef smakkað.

Nammi Kleinuhringirnir góðu. Mynd: Úr einkasafni

Kartöflukleinuhringir
(6–8 stk. kleinuhringir)

Hráefni:

60 ml mjólk, volg
1 msk. sykur
½ tsk. þurrger
2 kartöflur, soðnar, skrældar, volgar
½ egg
2 msk. smjör, brætt
¼ tsk. lyftiduft
¼ tsk. matarsódi
110 g hveiti
salt eftir smekk
kókosolía til að steikja upp úr
flórsykur til að strá yfir

Aðferð:

Blandið saman volgri mjólkinni við sykurinn og þurrgerið. Hrærið vel saman og látið standa á hlýjum stað þar til gerið myndar froðu á yfirborðinu.

Til að fá kartöflurnar sem léttastar í deiginu er best að nota kartöflupressu, annars stappa þær vel og hræra svo í þeim með gaffli til að gera þær loftkenndari. Blandið saman við smjörið, athugið að kæla það niður svo eggið eldist ekki. Hrærið eggið og blandið helmingnum af því saman við. Blandið saman við gerblönduna.

Hveiti, lyftiduft og matarsódi ásamt salti sett í skál. Hinum hráefnunum blandað saman við og hrært varlega saman þar til allt hveitið hefur blandast saman við vökvann og deig hefur myndast. Ekki hnoða neitt frekar. Setjið yfir skálina hreinan klút og látið standa í kæli 6–8 klukkustundir.

Að þeim tíma liðnum er kókosolían brædd, passið að hafa hana ekki of heita. Deigið flatt út og kleinuhringir skornir út. Það eru víst til sérstök form til að skera út kleinuhringi en þar sem ég átti ekkert slíkt fann ég niðursuðudós og tappa af flösku í réttum stærðum í endurvinnsluskápnum. Eldhúspappír settur á disk til að taka við hringjunum eftir steikingu.

Ágætt að prófa hitastigið á olíunni með litlu hringjunum innan úr kleinuhringjunum. Kleinuhringirnir eru svo steiktir, snúið við þegar þeir eru orðnir fallega gullbrúnir. Flórsykri stráð yfir.

Þessir stoppuðu ekki lengi á disknum, rétt náði að smella mynd af þeim. Það var eiginlega staðið yfir mér á meðan. Dásamlega góðir. Athugið að þetta er lítil uppskrift þar sem ég var að nýta afgangskartöflur og átti aðeins 110 grömm (nákvæmlega) af hveiti í skápunum. Fínt að tvöfalda hana allavega.

Elskar kartöflur

Ég elska kartöflur, skilst að það sé í genunum. Oft hefur kartöflugratín með smá skinku eða spínati verið aðalrétturinn á heimilinu, sem og fylltar bakaðar kartöflur svo ég tali nú ekki um djúpsteiktar kartöflur. Hér er nýjasta tilraunin með kartöflur, dásamlega bragðgóðar og dúnmjúkar kartöfluvöfflur. Held að ég muni héðan af alltaf baka þær svona.

Saltar og sætar Þrjár týpur af vöfflum, en ein er hefðbundin með rjóma og sultu. Mynd: Úr einkasafni

Kartöfluvöfflur

Hráefni:

1 bolli hveiti
2 msk. sykur
2 tsk. lyftiduft
½ tsk. salt
1–1½ bolli kartöflumús, eða 1 stór soðin bökunarkartafla eða 4–5 venjulegar kartöflur, soðnar og án hýðis
1 bolli léttmjólk
2 egg
5 msk. matarolía
1 tsk. vanilludropar, má sleppa

Aðferð:

Hveiti, sykri, lyftidufti og salti blandað saman í skál. Kartöflumúsinni blandað saman við mjólkina og olíuna, eggin hrærð saman við ásamt vanilludropunum. Blandið létt saman við hveitiblönduna. Ef þið notið soðna kartöflu, stappið hana, – best er að stappa hana í kartöflupressu til að deigið verði sem léttast. Einnig hægt að pressa hana í gegnum gróft sigti.

Fylling á vöfflur (f. tvær vöfflur hver uppskrift)

Skinku- og sveppafylling

Hráefni:

olía
3 skinkusneiðar, saxaðar í bita
3–4 sveppir, skornir í sneiðar
laukur, skorinn fínt
2 egg, steikt á pönnu í smjöri á lágum hita
salt og pipar
graslaukur, saxaður fínt

Aðferð:

Skinkan, sveppirnir og laukurinn svissað létt saman á pönnu. Saltað og piprað. Eggin steikt, graslaukurinn saxaður fínt. Skinkublandan sett á vöffluna, eggið yfir og graslauknum dreift yfir.

Nýrnabauna- og tómatfylling

Hráefni:

olía
½ bolli nýrnabaunir, soðnar
½ laukur, skorinn fínt
1 tómatur, skorinn í báta
2 msk. hummus

Aðferð:

Olía sett á pönnu, laukurinn svissaður létt í olíunni. Nýrnabaununum bætt út í og hitaðar. Tómatbátarnir settir síðast út á pönnuna. Hummusinn smurður á vöffluna og nýrna- og tómatblandan sett yfir.

Hamast í eldhúsinu Eygló í aksjón. Mynd: Úr einkasafni
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa