fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Matur

Hrönn gefur uppskriftir að fullt af girnilegu jólakonfekti

Fagurkerar
Fimmtudaginn 15. nóvember 2018 19:00

Hrönn og jólakonfektið.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég er svo ótrúlega mikið jólabarn að ég er alltaf að leita mér að nýjum skemmtilegum jólaverkefnum. Eitt árið datt mér í hug að gera heimagert konfekt og gefa vinum og vandamönnum og eftir það hefur þetta verið stór hluti af jólaundirbúningnum á þessu heimili og er orðin algjör jólahefð.

Fyrstu árin var þetta nokkuð saklaust.. ég gerði smá konfekt og skellti í nokkrar öskjur en núna er þetta orðin hálfgerð framleiðsla hjá mér og í ár geri ég 900 mola og gef 42 konfektöskjur.

Jólaöskjur.

Ég er búin að vera að sýna frá konfektgerðinni á snapchat og undirtektirnar hafa verið svo góðar að ég ákvað að skella í færslu með uppskriftum.

Ég sýni allar uppskriftirnar miðað við 100 mola en í ár gerði ég 1,5 falda uppskrift af öllu.

Uppskriftirnar eru frá öllum áttum, bæði hef ég búið þær til frá grunni eða notað að hluta til frá öðrum vefsíðum, mest þá frá sænskum síðum (Svíarnir eru greinilega algjörir sælkerar). En hér koma uppskriftirnar. Auðvitað er hægt að breyta uppskriftunum og minnka þær og stækka eftir því hvað þið viljið marga mola. Eina sem þarf að passa er að formið sem konfektið er sett í sé af réttri stærð miðað við magn. Hér er frábær síða þar sem hægt er að setja inn uppskriftina, stærð á forminu sem gert er ráð fyrir að nota og svo stærð á forminu sem þú vilt nota og þá kemur uppskriftin upp í réttum hlutföllum fyrir þitt form. Algjör snilld!

Rocky road (100 molar)

Hráefni:

900 g 70% súkkulaði
3 pokar Dumle karamellur
3 lúkur af litlum sykurpúðum
200 g salthnetur
70 g pistasíuhnetur

Aðferð:

Skerið dumle karamellur í tvennt og blandið þeim saman við sykurpúða og salthnetur. Hellið blöndunni í ferkantað form sem er ca. 30×30. Best að hafa smjörpappír í botninum og smyrja formið vel. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og hellið yfir blönduna í forminu og dreifið jafnt. Í lokin er pistasíuhnetum stráð yfir. Setjið formið í kæli þar til súkkulaðið harðnar og skerið svo í bita.

Rocky Road.

Cookie dough trufflur (100 kúlur)

Hráefni:

2 pakkar af Betty Crocker smákökudeigi
2 pokar lakkrískurl Nóa
300 g Nóa rjómasúkkulaði hreint
200 g Síríus konsúm með orange bragði
100 g 70% súkkulaði til skrauts

Aðferð:

Gerið smákökudeigið eftir leiðbeiningum á pakkanum. Bætið útí það lakkrískurli og blandið vel saman. Mótið kúlur úr deiginu. Bræðið saman rjómasúkkulaði og konsúm með orange bragði og hjúpið kúlurnar með blöndunni. Til að skreyta kúlurnar er 70% súkkulaði brætt og sprautað með sprautupoka með mjóum stút yfir kúlurnar.

Cookie Dough trufflur.

Döðlugott (100 bitar)

Aðferð:

360 g mjúkar döðlur
120 g púðursykur
240 g smjör
3 bollar rice crispies
200 g Síríus konsúm suðusúkkulaði

Aðferð:

Bræðið saman í potti döðlur, púðursykur og smjör þar til blandan er orðin þykk og döðlurnar ekki í bitum lengur. Bætið rice crispies útí og blandið vel saman. Setjið í form sem er ca 30×30 og sléttið jafn úr blöndunni. Best að hafa smjörpappír í botninum og smyrja formið vel. Bræðið suðusúkkulaði yfir vatnsbaði og dreifið yfir blönduna. Kælið og skerið í bita.

Döðlugott.

Oreo trufflur (90-100 kúlur)

Hráefni:

675 g Oreo kex
337 g rjómaostur
500 g Síríus konsúm hvítir súkkulaðidropar
nokkrar oreo kexkökur í viðbót til skrauts

Aðferð:

Brjótið oreo kex í bita og setjið í matvinnsluvél þar til það er alveg mulið. Bætið útí mulninginn rjómaostinum og blandið vel saman. Þetta er líka hægt að gera í höndunum ef matvinnsluvél er ekki á heimilinu. Þá er sniðugt að mylja kexið í blender áður. Mótið kúlur úr blöndunni.

Bræðið hvítt súkkulaði yfir vatnsbaði og hjúpið kúlurnar. Myljið nokkrar oreo kexkökur til viðbótar og stráið smá mulning yfir hverja kúlu þegar búið er að hjúpa hana til skrauts.

Oreo trufflur.

Snickersbitar (100 bitar)

Hráefni:

450 g rjómasúkkulaði hreint
450 g Síríus konsúm suðusúkkulaði
600 g sykurpúðar
300 g smjör
6 msk. hnetusmjör
1200 g rjómakúlur Nóa
6 msk. mjólk

Aðferð:

Lag 1 – Bræðið helming af rjómasúkkulaði (225g) og helming af suðusúkkulaði (225g) yfir vatnsbaði og hellið í botninn á formi sem er ca 30×30. Best að setja smjörpappír í botninn og smyrja formið vel áður. Skellið forminu í frysti meðan lag 2 er útbúið.

Lag 2 – Setjið sykurpúða, smjör og hnetusmjör í pott og bræðið þar til allt er vel blandað saman. Hellið yfir lag1 og setjið formið aftur í frystinn

Lag 3 – Bræðið rjómakúlur og mjólk saman í potti þar til það verður að þykkri karamellublöndu. Hellið yfir lag 2 og setjið formið aftur í frystinn

Lag 4 – Bræðið seinni helming af rjómasúkkulaði (225g) og seinni helming af suðusúkkulaði (225g) yfir vatsnbaði og hellið yfir lag 3.

Setjið í kæli þar til súkkulaði er harðnað og skerið i bita.

Snickersbitar.

Baileys trufflur (100 kúlur)

Hráefni:

1,75 dl Baileys
2,6 dl rjómi
875 g Síríus konsúm suðusúkkulaðidropar
kakó til að velta kúlunum uppúr

Aðferð:

Hellið suðusúkkulaðidropum í skál og geymið. Setjið Baileys og rjóma í pott og hitið að suðu (á alls ekki að bullsjóða). Hellið heitri blöndunni yfir súkkulaðidropana þannig að það fari yfir allt súkkulaðið. Látið bíða í 1 mínútu og hrærið svo vel þannig að allt blandist vel saman og allt súkkulaðið sé bráðið. Setjið í kæli í a.m.k. 2 klst áður en mótaðar eru kúlur úr blöndunni. Ef blandan er of lin þarf að kæla betur. Mótið kúlur úr blöndunni og veltið hverri kúlu uppúr kakó dufti.

Baileys trufflur.

Endilega kíkið á mig á snapchat:hronnbjarna – nóg að gera í eldhúsinu um jólin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa