fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Fréttir

Ótrúleg þrautaganga Hveitispotta – „Eftir allt þetta, er hann ennþá ljúfur sem lamb“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 8. júní 2026 21:42

Mynd: Facebook-síða Villikatta Vesturlands.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í nýrri færslu á Facebook-síðu samtakanna Villikettir Vesturlands er sögð saga kattar sem hefur verið í vörslu samtakanna frá 1. júní. Miðað við lýsingarnar hefur líf kattarins verið afar erfitt og sársaukafullt en hann hafði verið á vergangi í um tvö ár en í ljós hefur komið að einhver hefur gert það sér að leik að skjóta á köttinn úr haglabyssu en líkami hans var alsettur höglum.

Kötturinn er fress og hefur fengið nafnið Hveitispotti. Í færslu samtakanna segir:

„Þessi yndislegi og ljúfi kisukall kom til okkar 1. júní. En hann var búin að vera á vergangi á Mýrunum í Borgarfirði í uþb 2 ár.“

Segir enn fremur að strax hafi komið í ljós að ekki var allt eins og það átti að vera. Farið var þá með Hveitispotta til dýralæknis til að láta athuga framloppuna og láta hann gangast undir almenna skoðun. Þá kom hins vegar í ljós nokkuð afar óvænt:

„Þessi yndislegi, fallegi og góði kisukall hefur verið skotinn með haglabyssu á einhverjum tímapunkti og er líkaminn allur í höglum. Okkur finnst ótrúlegt að eftir allt þetta, er hann ennþá ljúfur sem lamb. Vill allt klappið og elskar alla. Þrátt fyrir þessa hrikalegu meðferð sem hann hefur þurft að þola. Sýnir bara með eindæmum hvað þessi dýr eru þrautseig og sterk því þrátt fyrir þetta allt, er hann ótrúlega brattur og lætur ekkert stoppa sig.“

Á röntgenmyndum sem fylgja færslunni má sjá að höfuð, háls og fremri hluti kviðs Hveitispotta hafa verið alsett höglum.

Segir að lokum í færslunni að Hveitispotti hljóti að hafa komið af einhverju heimili:

„Hveitispotti er algjört yndi og gætum við alveg trúað því að það sé einhver þarna úti sem saknar hans, ef einhver kannast við hann má endilega hafa samband við okkur. Hann er með öllu ómerktur og ógeldur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hent út af framboðslistum eftir að hafa lofað voðaverk Hamas

Hent út af framboðslistum eftir að hafa lofað voðaverk Hamas
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Buguð vegna ónæðis frá framkvæmdunum á Orkureitnum og krafðist afsláttar af leigunni

Buguð vegna ónæðis frá framkvæmdunum á Orkureitnum og krafðist afsláttar af leigunni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu