fbpx
Föstudagur 05.júní 2026
Fréttir

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu

Ritstjórn DV
Föstudaginn 5. júní 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Umboðsmaður Alþingis hefur lokið meðferð sinni á kvörtun ónefnds einstaklings sem fór meðal annars fram á að umboðsmaður kannaði hvort reglur um skerðingu örorkulífeyris vegna fjármagnstekna væru í samræmi við mannréttindasáttmála Evrópu.

Kvörtunin barst í síðasta mánuði en hún laut nánar tiltekið að nýju kerfi örorkulífeyris sem tók gildi 1. september 2025. Segir í bréfi umboðsmanns til umrædds einstaklings að af kvörtuninni mætti ráða að hún sé tilkomin vegna breytinga á ýmsum lögum vegna þeirrar endurskoðunar örorkulífeyris almannatrygginga, sem tók gildi í september 2025.

Kvartandinn telur að skerðing lífeyris vegna fjármagnstekna sem og fjármagnstekjuskattur, sem greiða eigi af sömu tekjum, feli í sér brot á eignarrétti og kerfisbundna mismunun. Óskaði hann eftir því að umboðsmaður Alþingis tæki til skoðunar hvort að kerfið samræmist jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar og 1. grein 1. samningsviðauka Mannréttindasáttmála Evrópu, en Ísland er aðili að sáttmálanum.

Ekki Alþingi

Umboðsmaður segir hins vegar í bréfinu að samkvæmt lögum taki starfssvið umboðsmanns ekki til starfa Alþingis og stofnana þess. Það sé því almennt ekki á verksviði embættisins að taka afstöðu til þess hvernig til hafi tekist með löggjöf sem Alþingi hafi sett.

Umboðsmanni  sé þó heimilt að tilkynna Alþingi, hlutaðeigandi ráðherra eða sveitarstjórn ef umboðsmaður verði var við meinbugi á gildandi lögum eða almennum stjórnvaldsfyrirmælum í störfum sínum. Ekki sé hins vegar gert ráð fyrir því að kvörtun verði borin fram við umboðsmann á þessum grundvelli, þótt öllum sé frjálst að koma ábendingum á framfæri við embættið.

Umboðsmaður vísar einnig til þess að svo hægt sé að bera fram kvörtun við embættið verði almennt að liggja fyrir ákveðin ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi stjórnvalds sem beinist sérstaklega að þeim sem leggi fram kvörtun eða varði beinlínis hagsmuni hans eða réttindi umfram aðra. Þar sem kvörtunin snúist ekki um stjórnvaldsákvörðun sem beinist að kvartandanum sérstaklega séu ekki lagaskilyrði fyrir því að taka kvörtunina til frekari meðferðar af hálfu embættisins.

Umboðsmaður Alþingis hefur því lokið meðferð sinni á kvörtuninni og einstaklingurinn sem lagði hana fram þarf því að leita annað til að fá svör við spurningum sínum um hvort skerðing örokulífeyris vegna fjármagnstekna feli í sér brot á eignarrétti, stjórnarskránni, Mannréttindasáttmála Evrópu og kerfisbundna mismunun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Starmer hitti fjölskyldu Henry Nowak – Lögreglukona í felum

Starmer hitti fjölskyldu Henry Nowak – Lögreglukona í felum
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Ferðamaður lýsir dapurri reynslu: „Bjóst ekki við að þetta myndi gerast á Íslandi“

Ferðamaður lýsir dapurri reynslu: „Bjóst ekki við að þetta myndi gerast á Íslandi“
Fréttir
Í gær

Dómur fallinn yfir Margréti – Ákærð fyrir ærumeiðingar í garð Barböru héraðsdómara

Dómur fallinn yfir Margréti – Ákærð fyrir ærumeiðingar í garð Barböru héraðsdómara
Fréttir
Í gær

Safnað fyrir fjölskyldu Ingu Daggar sem lést í kajakslysi – „Stuðningur núna getur skipt miklu fyrir framtíð drengjanna“

Safnað fyrir fjölskyldu Ingu Daggar sem lést í kajakslysi – „Stuðningur núna getur skipt miklu fyrir framtíð drengjanna“
Fréttir
Í gær

Sjúkt athæfi – Kastaði kettlingum út um bílglugga á ferð

Sjúkt athæfi – Kastaði kettlingum út um bílglugga á ferð
Fréttir
Í gær

Martha um Sjálfstæðisflokkinn – „Flokkurinn of oft virst vera í grímulausri hagsmunagæslu fyrir fáa og valdamikla hópa“

Martha um Sjálfstæðisflokkinn – „Flokkurinn of oft virst vera í grímulausri hagsmunagæslu fyrir fáa og valdamikla hópa“