fbpx
Föstudagur 05.júní 2026
Fréttir

Umfangsmiklar svikatilraunir í gangi – Lögreglu aldrei borist jafn margar tilkynningar

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 3. júní 2026 18:00

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við smáskilaboðum sem eru að berast til fjöldamargra íslenskra símanúmera þessa dagana.

Um er að ræða skilaboð sem sögð eru vera frá umferðarlögreglu og fólki bent á að ýta á hlekk til að greiða sekt. Aldrei hafa borist jafn margar tilkynningar til lögreglu vegna netbrotatilrauna á jafn skömmum tíma og má því ætla að um mjög umfangsmiklar tilraunir sé að ræða.

Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni er þeim tilmælum beint til fólks að ýta aldrei á hlekki sem það fær senda. Fólki er ráðlagt að leita alltaf inn á viðurkennda síðu þess sem skilaboðin eiga að vera frá. Sektir frá lögreglu berast alltaf inn á island.is

Telji fólk sig hafa orðið fyrir svikum af þessu tagi og hafa tapað fjármunum er því bent á að hafa tafarlaust samband við sinn viðskiptabanka til að fá ráðgjöf og í framhaldinu tilkynna málið til lögreglu. Þá minnir lögregla á netbrotagáttina á island.is sem finna má undir „samfélag og réttindi“. Þar er bæði hægt að tilkynna netbrot til lögreglu sem og tilraunir til slíkra brota.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Segir Vilhjálm ekki byrja vel – „Tók nýi bæjarstjórinn niður fána Reykjanesbæjar til að flagga íslenska fánanum“

Segir Vilhjálm ekki byrja vel – „Tók nýi bæjarstjórinn niður fána Reykjanesbæjar til að flagga íslenska fánanum“
Fréttir
Í gær

Vilhjálmur ráðinn bæjarstjóri án þess að fyrir lægi ráðningarsamningur – „Ég skil ekki alveg hvert við erum að fara í þessum efnum“

Vilhjálmur ráðinn bæjarstjóri án þess að fyrir lægi ráðningarsamningur – „Ég skil ekki alveg hvert við erum að fara í þessum efnum“