

Eldur kom upp í fiskibáti á Breiðafirði um hádegisbilið í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgsælunni.
Í tilkynningunni segir að stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hafi fengið tilkynningu á tólfta tímanum í dag um að eldur væri í vélarrúmi fiskibáts sem staddur var á Breiðafirði. Einn maður hafi verið um borð í bátnum. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hafi þegar í stað verið kölluð út á mesta forgangi ásamt áhöfn Bjargar, björgunarskips Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Rifi. Einnig hafi skip og bátar í grenndinni verið beðin um að halda á vettvang. Skömmu eftir að tilkynningin barst hafi borist upplýsingar til stjórnstöðvar Gæslunnar um að búið væri að loka vélarrúmi bátsins og ræsa slökkvikerfi.
Segir enn fremur að fyrsti nálægi bátur hafi komið fljótt á vettvang og stuttu síðar björgunarskipið og þyrla Landhelgisgæslunnar. Sigmaður og læknir þyrlusveitarinnar hafi sigið um borð í bátinn til að meta aðstæður og huga að skipverjanum um borð en hann hafi orðið fyrir óhappi þegar eldurinn kom upp. Að því búnu hafi skipverjinn farið um borð í björgunarskipið og fiskibáturinn tekinn í tog til hafnar á Rifi. Gert sé ráð fyrir að þangað verði komið laust fyrir klukkan fjögur.