fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Fréttir

Allt á suðupunkti eftir dóminn á morðingja Henry Nowak

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 3. júní 2026 19:00

Frá mótmælum í Southampton á Englandi. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, gagnrýndi Nigel Farage, formann Umbótaflokksins (e. Reform UK), harðlega fyrir viðbrögð þess síðarnefnda við morðmáli Henry Nowak, málið hefur vakið mikla athygli og orðið að pólitísku bitbeini. Samkvæmt BBC særðust ellefu lögreglumenn og einn lögregluhundur í mótmælum í Southampton í gær, tveir voru handteknir.

Líkt og DV greindi frá í gær var hinn 23 ára gamli Vickrum Digwa var dæmdur til 21 árs fangelsi fyrir að myrða hinn 18 ára gamla Henry Nowak í Southhampton á Englandi 3. desember síðastliðinn. Digwa sagði lögreglu að Nowak hafi verið með kynþáttafordóma í sinn garð og meitt sig, lögreglan handtók Nowak fyrir líkamsárás og trúði ekki að Digwa hafi stungið hann fyrr en hann hafði misst meðvitund.

Sjá frétt: Sláandi upptaka úr búkmyndavél sýnir lögreglu handtaka deyjandi ungmenni

Í umræðum um málið á breska þinginu í dag ítrekaði Starmer orð föður Nowaks um að nýta ekki morðið til sundrungar eða haturs, sagði hann það vera „ófyrirgefanlegt“ af Farage að fordæma ekki mótmælin í Southampton. „Að nýta sér þennan harmleik til að auka sundrung er rangt en að gera það þegar það fer gegn vilja fjölskyldunnar er ófyrirgefanlegt,“ sagði Starmer. Árásir á lögreglumenn við mótmælin séu óásættanleg.

Hér má sjá upptöku Guardian af orðaskiptum Starmer og Farage á þinginu í dag:

Farage sagði á hinn boginn að málið sýndi fram á laggskipta löggæslu þar sem lögreglumann kæmu öðruvísi fram við fólk byggt á uppruna þeirra. Í myndbandi sem hann birti á YouTube hvatti Farage sína til að bregðast við með „hreinni og kaldri reiði“. „Öll þau gildi og lífsskilyrði þess að búa í frjálsu landi þar sem allir eru jafnir fyrir lögunum hefur verið hent út,“ hefur FT eftir honum.

Ellefu lögreglumenn særðust í mótmælunum. Mynd/Getty

Ljósvakamiðlar Bretlands hafa ítarlega fjallað um málið í dag, BBC ræddi við  Shabnam Chaudhri, fyrrum yfirmann lögreglunnar í Lundúnum, sem sagði vinnubrögð lögreglumannanna á vettvangi ekki til eftirbreytni. Þá sagði Tan Dhesi, þingmaður Verkamannaflokksins, sem er Sikh líkt og Digwa, að margir sem tilheyra þeim hópi séu hræddir, þá sérstaklega við umræðuna á samfélagsmiðlum, morðið hafi ekkert haft með trúarbrögð þeirra að gera.

Sarah Jones, ráðherra lögreglumála, sagði við BBC að hún viðurkenndi að orðalag í reglugerð sem beint væri gegn kynþáttahatri í lögreglunni væri rangt. Það að „koma fram við alla í takt við þeirra þarfir“, væri ekki það sama og að koma öðruvísi fram við fólk byggt á kynþætti eða menningarlegum bakgrunni, skerpa þurfi á því að allir séu jafnir fyrir lögunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn