

Undanfarin ár hefur íslenskt atvinnulíf staðið frammi fyrir kólnum hagkerfisins en á sama tíma hafa stórir kostnaðarliðir, t.d. laun og húsaleiga, hækkað sjálfvirkt.
Þetta segir Kjartan Örn Sigurðsson, eigandi Ormsson hf, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.
Kjartan segir að á sama tíma og kaupsamningum hefur fækkað, neysla dregist saman og margir markaðir veikst hafi stærstu kosnaðarliðir fyrirtækja haldið áfram að hækka sjálfvirkt:
„Laun hækka samkvæmt kjarasamningum. Leiga atvinnuhúsnæðis hækkar með verðtryggingu og vísitölu. Fjármagnskostnaður hækkar með vaxtabreytingum og opinber gjöld taka mið af hækkandi verðlagi. Tekjuhlið fyrirtækja verður þannig sífellt sveiflukenndari á meðan kostnaðarhliðin harðnar. Þessi þróun hefur fengið litla umræðu,“ segir Kjartan í grein sinni, og bendir á að á stærri mörkuðum í Evrópu séu leigusamningar endurskoðaðir samkvæmt greiningu á húsnæðiskostnaði, markaðsleigu og rekstrargetu leigutaka. Á Íslandi séu þróunin hins vegar að mestu leyti skoðuð út frá eignahliðinni:
„Umræðan er oft leidd áfram af fasteignafélögum, fjármögnunarkerfi og fasteignasölum með áherslu á verðmætaþróun eigna. Mun síður hefur verið horft til þess hvort sjálfvirkt hækkandi húsnæðiskostnaður sé orðinn úr takti við rekstrargetu fyrirtækja í breyttu hagkerfisumhverfi. Hér á landi hefur þróunin oftar verið í átt að sjálfvirkum hækkunum.“
Kjartan bendir á að á tímabilinu 2021 til 2024 hafi heildarvelta á íslenskum raftækjamarkaði dregist saman um 10% að raunvirði en leiguverð hækkað um þriðjung frá ársbyrjun 2021 vegna vísitölu, óháð afkomu leigutaka. Þannig hafi ársleiga hjá fyrirtæki getað hækkað úr 100 milljónun króna upp í 134 milljónir án þess að reksturinn hafi stækkað að raunvirði. Við slíkar aðstæður þurfi fyrirtæki annað hvort að hækka verð, skera niður eða sætta sig við lakari afkomu. Kjartan segir í lok greinar sinnar:
„Í heilbrigðu hagkerfi þurfa bæði tekjur og kostnaður að geta aðlagast raunveruleikanum; líka leiga atvinnuhúsnæðis. Ef helstu kostnaðarliðir atvinnulífsins mega aðeins hækka verður að lokum eitthvað annað að gefa sig.“