fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
Fréttir

Flugfélagið Vueling þarf að greiða níu íslenskum farþegum bætur – Kunnu ekki að lesa úr veðurspá

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 9. apríl 2026 12:30

Véllin átti að fara frá Barcelona til Keflavíkur. Mynd/Wiki

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Spænska flugfélagið Vueling hefur verið gert að greiða níu íslenskum farþegum bætur vegna niðurfellds flugs frá Barcelona til Keflavíkur. Fólkinu var ekki tilkynnt um ástæður niðurfellingarinnar.

Um er að ræða tvo hliðstæða dóma sem féllu í Héraðsdómi Reykjaness í gær, 8. apríl. Í öðrum málinu voru fjórir stefnendur en hinu fimm.

Fólkið átti sæti í flugi frá Barcelona til Keflavíkur þann 4. apríl árið 2022. Fluginu var skyndilega aflýst og farþegum ekki sagt af hverju.

Vildu skaðabætur

Fólkið krafðist þess að flugfélagið greiddi þeim hverju um sig 400 evrur í skaðabætur, það er um 58 þúsund krónur með vísan til Evrópureglna. Hið spænska lággjaldaflugfélag sagðist hins vegar ekki hafa fengið nein bréf með þessum kröfum.

Einnig að fluginu hafi verið aflýst vegna óviðráðanlegra verðuraðstæðna á Keflavíkurflugvelli byggt á veðurspá. Búast hafi mátt við litlu skyggni og snjókomu.

Þá hafi flugið verið endurgreitt í gegnum ferðaskrifstofu daginn eftir aflýsinguna. Þar með hafi flugfélagið lágmarkað neikvæðar afleiðingar vegna hinna óviðráðanlegu aðstæðna.

Ruglingur

Dómari taldi að Vueling hafi ruglast á skýjahæð og skyggni í veðurspánni. Skyggnið hafi verið mun meira en lágmarksskilyrði eru á Keflavíkurflugvelli. Ekkert var að veðrinu í Keflavík þennan dag að mati sérfræðinga flugrekstrardeildar Samgöngustofu. Hefði því ekki verið um óviðráðanlegt atvik að ræða.

Var Vueling dæmt til að greiða hverjum farþega 56.720 krónur með vöxtum auk 144.758 krónur í málskostnað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Meinaður aðgangur að minnisblöðum Bjarna og Þorgerðar Katrínar

Meinaður aðgangur að minnisblöðum Bjarna og Þorgerðar Katrínar
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Dagur reifar ömurlegar afleiðingar Brexit – „Þær eldast illa yfirlýsingar íslenskra ráðamanna“

Dagur reifar ömurlegar afleiðingar Brexit – „Þær eldast illa yfirlýsingar íslenskra ráðamanna“
Fréttir
Í gær

Einar segir menntun Helgu Völu vera fjárfestingu en ekki gjöf – Gagnrýnir Konráð hagfræðing harðlega

Einar segir menntun Helgu Völu vera fjárfestingu en ekki gjöf – Gagnrýnir Konráð hagfræðing harðlega
Fréttir
Í gær

Vopnahléið hangir á bláþræði og heimurinn heldur niðri í sér andanum

Vopnahléið hangir á bláþræði og heimurinn heldur niðri í sér andanum
Fréttir
Í gær

Sandra ekki sátt: „Við eigum að velja uppbyggingu fram yfir niðurskurð“

Sandra ekki sátt: „Við eigum að velja uppbyggingu fram yfir niðurskurð“
Fréttir
Í gær

Flestum finnst stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum – Píratar eru óánægðari en Miðflokksmenn

Flestum finnst stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum – Píratar eru óánægðari en Miðflokksmenn