fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
Fréttir

Byggt umfram íbúðaþörf í fyrra og íbúðaskuldin minnkar

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 9. apríl 2026 09:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nægilega mikið var af byggingarhæfum lóðum á síðasta ári til að mæta áætlaðri þörf í bæði Reykjavík og Garðabæ, en skortur var á byggingarhæfum lóðum í Kópavogi, Hafnarfirði og Mosfellsbæ. Fólksfjölgun var í takt við lágspá sveitarfélaganna sem skiluðu inn húsnæðisáætlun árið 2025 eftir að hafa verið nær miðspá og háspá sveitarfélaganna á árunum á undan. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS). Þar kemur einnig fram að íbúðaþörf reyndist minni en sveitarfélögin gerðu ráð fyrir í miðspá sinni vegna minni fólksfjölgunar á meðan íbúðauppbygging var umtalsverð á árinu. Byggt var umfram nýja íbúðaþörf og náðist að vinna niður íbúðaskuld sem hafði safnast upp árin á undan. HMS áætlar gróflega að íbúðaskuldin á höfuðborgarsvæðinu hafi minnkað um 500 íbúðir og um rúmlega 120 íbúðir í nágrenni höfuðborgarsvæðisins.

Sama þróun átti sér þó ekki stað hvað varðar biðlista eftir búseturéttaríbúðum og leiguíbúðum utan markaðsleigu. Biðlistar töldu tæplega 7 þúsund umsækjendur og voru álíka langir árið 2025 og þeir voru árið á undan. Leikskólapláss og hjúkrunarrými voru af skornum skammti á suðvesturhorni landsins þar sem biðlistar námu hundruðum umsækjenda. Yfir 1.500 umsækjendur voru á biðlista eftir félagslegum leiguíbúðum sveitarfélaga og tæplega 4.000 voru á biðlista eftir öðrum leiguíbúðum fyrir tekju- og eignalága. Opinber gjöld vegna íbúðauppbyggingar eru langmest á höfuðborgarsvæðinu en sem hlutfall af markaðsvirði íbúða eru þau meiri á Selfossi.

Nánar má lesa um stöðuna í skýrslu HMS.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Meinaður aðgangur að minnisblöðum Bjarna og Þorgerðar Katrínar

Meinaður aðgangur að minnisblöðum Bjarna og Þorgerðar Katrínar
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Dagur reifar ömurlegar afleiðingar Brexit – „Þær eldast illa yfirlýsingar íslenskra ráðamanna“

Dagur reifar ömurlegar afleiðingar Brexit – „Þær eldast illa yfirlýsingar íslenskra ráðamanna“
Fréttir
Í gær

Einar segir menntun Helgu Völu vera fjárfestingu en ekki gjöf – Gagnrýnir Konráð hagfræðing harðlega

Einar segir menntun Helgu Völu vera fjárfestingu en ekki gjöf – Gagnrýnir Konráð hagfræðing harðlega
Fréttir
Í gær

Vopnahléið hangir á bláþræði og heimurinn heldur niðri í sér andanum

Vopnahléið hangir á bláþræði og heimurinn heldur niðri í sér andanum