fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fréttir

Kanóna í Sjálfstæðisflokknum rýfur þögnina – „Á mjög erfitt með þá orðræðu og heift sem nú ræður ríkjum“

Kristinn H. Guðnason
Laugardaginn 25. apríl 2026 14:30

Ragnheiður segir flokkinn hafa fjarlægst grunngildum sínum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragnheiður Ríkharðsdóttir, fyrrverandi þingmaður og bæjarstjóri, er vonsvikin með stefnu Sjálfstæðisflokksins í dag. Hún segir flokkinn vera að hverfa frá grunngildum sínum um umburðarlyndi og frjálslyndi en heiftin hafi tekið völdin.

Frjálslyndið farið

„Ég gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn 1985, þá var foreldrum mínum, eðalkrötunum á Akranesi ekki skemmt, þegar ég keyrði fyrir fjörð til að segja þeim frá ákvörðun minni. En þeir virtu ákvörðun mína og studdu mig í mínu pólitíska brölti,“ segir Ragnheiður í færslu á samfélagsmiðlum. „Á þeim tíma var umburðarlyndi og frjálslyndi ríkjandi í Sjálfstæðisflokknum og ég tengdi við þau gildi sem og grunngildi flokksins.“

Þetta sé hins vegar breytt í dag. Rúmum fjörutíu árum síðar.

„Ég sakna hins vegar í dag, 41 ári frá þeirri ákvörðun minni að ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn, þess umburðarlyndis og frjálslyndis sem einkenndi flokkinn minn þá og á mjög erfitt með þá orðræðu og heift sem nú ræður ríkjum.“

Ragnheiður sat á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn árin 2007 til 2016. Árin 2013 til 2016 var hún þingflokksformaður. Áður en hún settist á Alþingi var hún bæjarstjóri í Mosfellsbæ, árin 2002 til 2007.

Ekki ein

Sumir taka undir með Ragnheiði í athugasemdakerfinu. Meðal annars Sjálfstæðismaðurinn Elías Pétursson, sem var sveitarstjóri í Langanesbyggð og síðar Fjallabyggð.

Elías Pétursson fyrrverandi bæjarstjóri Fjallabyggðar.

„Þú ert ekki ein,“ segir Elías við færsluna.

Kristján L. Möller, fyrrverandi þingmaður og ráðherra Samfylkingar, býður Ragnheiði velkomna í Samfylkinguna. „Komdu bara heim aftur,“ segir hann. „Í húsi okkar eru margar vistarverur.“ En Ragnheiður afþakkar það. Segist hún enn þá vera virk í starfi Sjálfstæðisflokksins.

Seinasti Sjálfstæðismaðurinn farinn af þingi

Ein kona í athugasemdum nefndir að eini raunverulegi Sjálfstæðismaðurinn hafi verið að fara af þingi. Á hún þá væntanlega við Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur, fyrrverandi utanríkisráðherra, sem nýlega var skipuð sendiherra í London.

„Það hefur stundum verið talað um gjá milli þings og þjóðar, kannski hefur verið í langan tíma að ræða gjá milli flokks og þjóðar,“ segir önnur.

Oft tekist hressilega á

Ekki eru hins vegar allir sammála Ragnheiði. Einn flokksmaður segist hafa séð meiri hörku áður fyrr.

„Oft hefur verið tekist hressilega á, bæði um menn og málefni,“ segir hann. „Hef mætt á svo til alla landsfundi allt frá 1978. Sé alls ekki að afstaða flokksmanna sé harðari eða hatursfyllri nú en oft áður, hvorki inn á við né í garð pólitískra andstæðinga. Nema síður sé.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Risastórt kókaínmál á Austurlandi

Risastórt kókaínmál á Austurlandi
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Gylfi furðar sig á frétt Morgunblaðsins – „Hrein og klár afvegaleiðun umræðunnar!“

Gylfi furðar sig á frétt Morgunblaðsins – „Hrein og klár afvegaleiðun umræðunnar!“
Fréttir
Í gær

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“
Fréttir
Í gær

Jafn vel Hollendingum blöskrar verðlagið á Íslandi – „Þig grunar ekki hversu sjúklega gráðugir Íslendingar geta verið“

Jafn vel Hollendingum blöskrar verðlagið á Íslandi – „Þig grunar ekki hversu sjúklega gráðugir Íslendingar geta verið“
Fréttir
Í gær

Gylfi Þór minnist móður sinnar sem var myrt – „Ég mun kveikja á kerti í kvöld“

Gylfi Þór minnist móður sinnar sem var myrt – „Ég mun kveikja á kerti í kvöld“
Fréttir
Í gær

Ása föst í hryllingshúsinu: „Fólk gengur stöðugt framhjá húsinu, tekur myndir og bendir“

Ása föst í hryllingshúsinu: „Fólk gengur stöðugt framhjá húsinu, tekur myndir og bendir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést