

Ökukennarinn Njáll Gunnlaugsson leggur til að millireinaakstur mótorhjóla verði leyfður. Það myndi auka öryggi bifhjóla í borgarumferðinni.
„Hver þekkir ekki það að keyra í þeim umferðarþunga sem farinn er að einkenna Stór-Reykjavíkursvæðið? Sumar eru jafnvel farnir að veigra sér við að keyra þar á vissum tímum og ekki að undra. Sums staðar er umferðin á fjórum akreinum með allar gerðir ökutækja, og þegar hún gengur hægt freistast margir til að taka upp símann því miður,“ segir Njáll í aðsendri grein á Vísi. „Hvernig haldið þið þá að okkur á óvörðu mótorhjólunum líði með bílana allt í kring, suma þeirra með augun niður á við?“ spyr hann.
Fyrir mótorhjólafólk sé mesta hættan sú að klemmast á milli bíla í sömu akrein. Leggur hann því til að hinn svokallaði millireinaakstur verði leyfður hér sem annars staðar.
„Nú er enginn að tala um það að mótorhjólafólk vilji leyfa akstur á milli bíla hvar sem er, langt í frá,“ segir Njáll.
Það sem kallað sé „lane splitting“ á ensku sé akstur á milli akreina í venjulegri umferð en „lane filtering“ er annað og gæti vel átt við stór-Reykjavíkursvæðið. Mörg Evrópulönd og fylki í Bandaríkjunum leyfi slíkan aksur. „Venjulega er þá átt við að leyfa mótorhjólunum að þræða sig gegnum umferð sem er að keyra undir 20-30 km hraða,“ segir hann.
Nefnir hann að mótorhjólin séu sneggri að taka af stað. 50 mótorhjól fremst á gatnamótum séu margfalt fljótari að taka af stað en 50 bílar, auk þess að taka miklu minna pláss.
„Loks er margt sem mælir með milliakreinaakstri fyrir mótorhjólafólk, sem sér þannig betur fram á veginn og hvað bílar sitt hvoru megin við það ætla sér fyrir. Einnig eiga bílstjórar frá hlið erfiðara með að sjá mótorhjól milli bíla í sömu akrein,“ segir Njáll.
Vísar Njáll í lögin, það er 23. grein umferðarlaga sem segir að aka skuli vinstra megin fram úr ökutæki, sé ekið fram úr reiðhjóli eða léttu bifhjóli skuli vera að minnsta kosti 1,5 metra hliðarbil. Það sem setur mótorhjólafólki stein í götu sé 45. greinin þar sem segi að bifhjóli megi ekki aka í sömu rein og önnur ökutæki nema öðru bifhjóli og aðeins á svæðum þar sem hámarkshraði er 50 km/klst eða minni. Breyta þurfi þessu til að heimila millireinaakstur.
„Eflaust þyrfti fleira að koma til svo hægt sé að auka öryggi bifhjóla, sem og annarra vegfarenda. Leitast þyrfti eftir því að auka fjarlægð stöðvunarlínu frá gatnamótum um 2-3 metra. Við það skapast pláss fyrir bifhjólin en einnig eykur það útsýni á gangandi og hjólandi umferð við gatnamótin,“ segir Njáll að lokum. „Loks þurfa aðrir vegfarendur að átta sig á þeirri staðreynd að tillaga um milliakreinaakstur er ekki sett fram til að létta okkur mótorhjólafólki lífið, heldur til að auka öryggi bifhjóla í borgarumferð. Mögulega yrði það líka til þess að fleiri notuðu bifhjól innanbæjar, sem léttir þannig aðeins á umferðinni og er öllum til góða.“