fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fréttir

Guðni svarar Ólafi fullum hálsi og sakar hann um ósannindi – „Einfaldlega staðlausir stafir“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 29. apríl 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þeir Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra, og Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, takast á um íslenskt og innflutt lambakjöt á síðum Morgunblaðsins.

Guðni birti reiðilestur í blaðinu um miðjan apríl vegna innflutts lambakjöts. Hann segir innflutning á lambakjöti vera óvirðingu við íslenska lambið og íslenska sauðfjárbændur.

Sjá einnig: „Vörufals og ósvífni af verstu gráðu“

„Aftur og aftur ber svo við að heildsölufyrirtæki kjósa að flytja inn lambakjöt og nýlega rakst ég á frosin læri og lambahryggi í smásöluverslun komin alla leið frá Nýja-Sjálandi, flutt tæplega átján þúsund kílómetra leið til Íslands. Lamb sem á ekkert skylt við okkar lambakjöt; bragðlaust, ekkert villibragð, ekkert lyngbragð. Tengslalaust við góðu vana bragðlaukana í íslenskum munni,“ segir Guðni í grein sinni og sagði kjötið selt undir fölsku flaggi:

„Kjötið selst alls ekki neitt og endar gjarnan á á því að vera þítt upp, brytjað niður, sett í sósur og selt inn á veitingastaði, í skólamáltíðir barnanna og víðar undir fölsku, eða a.m.k. engu, flaggi. Vörufals og ósvífni af verstu gráðu, engin skilgreining um uppruna eða hvaðan það er komið. Kannski gefur Landspítalinn það sjúklingunum (ekki starfsfólkinu). Svona eins og viðbitið umdeilda sem flutt er inn og gefið sjúklingunum í stað smjörs.“

Segir Kaupfélag Skagfirðinga flytja inn lambakjöt

Ólafur Stephensen svaraði grein Guðna nokkrum dögum eftir birtingu hennar og benti á að samkvæmt tölum Hagstkorunnar séu stærstu innflytjendur erlends lambakjöts íslenskar afurðastöðvar. Meðal þeirra sé leppfélag Kaupfélags Skagfirðinga, Háihólmi.

Sjá einnig: Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf

Ólafur skrifaði: „Það er á almanna vitorði að Háihólmi er leppur fyrir Kaupfélag Skagfirðinga. Fyrirtækið skaut upp kollinum í tollkvótauppboðum eftir að aðalfundur KS ályktaði að kaupfélagið og dótturfélög þess ættu ekki að stunda innflutning landbúnaðarafurða. Fyrirtækið er sagt í eigu innkaupastjóra Esju Gæðafæðis, dótturfélags KS. Það ættu nú að vera hæg heimatökin hjá Guðna að hringja í Þórólf fóstra sinn kaupfélagsstjóra og spyrja hvort hann, af öllum mönnum, sé genginn af trúnni á íslenzka lambið.“

Guðni segir fullyrðingarnar ósannar

Þessu harðneitar Guðni í grein sem hann birti í Morgunblaðinu í dag. Hann segir fullyrðingar um lambakjötsinnflutning KS í gegnum leppfélag vera staðlausa stafi:

„Ólafi Stephensen er margt til lista lagt í erindrekstri sínum fyrir þá sem greiða honum launin – atvinnurekendum og þar með töldum heildsölum sem sumir hverjir svífast einskis til þess að hámarka hagnað sinn. En stundum gengur hann of langt og fer til hliðar við sannleikann út frá þeirri vafasömu reglu að tilgangurinn helgi meðalið. Dæmi um það er í Morgunblaðinu 17. apríl sl. þegar hann fullyrðir að Kaupfélag Skagfirðinga hafi í gegnum dótturfélag sitt Esju staðið að innflutningi á útlensku lambakjöti. Þetta er ekki rétt. Einfaldlega staðlausir stafir.“

Í þessari grein fer Guðni, eins og oft áður, lofsamlegum orðum um hreinleika íslenskra landbúnaðarafurða. Hann varar við hættu á sýklaónæmi:

„Sýklalyfjaónæmi er ein stærsta heilbrigðisógn sem heimurinn stendur frammi fyrir í dag að mati Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Þetta veit Ólafur. Hann veit líka að á Íslandi eigum við væntanlega heilbrigðustu búfjárstofna veraldar. Kuldinn er auðlind og eiturefnum sem sett eru í móður jörð vegna matvælaframleiðslu er haldið í algjöru lágmarki. Vegna banns við flutningi lifandi dýra til Íslands erum við laus við hrikalegustu dýraplágurnar í Evrópu, t.d. kúariðu og gin- og klaufaveiki.“

Segir Guðni að ástæða sé til að efla íslenskan landbúnað enda ógni staða heimsmála matvælaöryggi:

„Það ætti að vera markmið stjórnvalda, og okkar Íslendinga, að efla enn frekar allan landbúnað á Íslandi. Að við framleiddum sjálf eggin okkar, svínakjötið, nautakjötið, kjúklinginn og grænmetið, svo ekki sé nú talað um íslenska lambakjötið. Ástæðurnar eru ærnar sem aldrei fyrr. Ástand heimsmálanna er stöðug ógn gagnvart matvælaöryggi okkar og augnabliks andvaraleysi getur valdið stórkostlegu tjóni vegna smithættu og sýklalyfjaónæmis.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Risastórt kókaínmál á Austurlandi

Risastórt kókaínmál á Austurlandi
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Gylfi furðar sig á frétt Morgunblaðsins – „Hrein og klár afvegaleiðun umræðunnar!“

Gylfi furðar sig á frétt Morgunblaðsins – „Hrein og klár afvegaleiðun umræðunnar!“
Fréttir
Í gær

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“
Fréttir
Í gær

Jafn vel Hollendingum blöskrar verðlagið á Íslandi – „Þig grunar ekki hversu sjúklega gráðugir Íslendingar geta verið“

Jafn vel Hollendingum blöskrar verðlagið á Íslandi – „Þig grunar ekki hversu sjúklega gráðugir Íslendingar geta verið“
Fréttir
Í gær

Gylfi Þór minnist móður sinnar sem var myrt – „Ég mun kveikja á kerti í kvöld“

Gylfi Þór minnist móður sinnar sem var myrt – „Ég mun kveikja á kerti í kvöld“
Fréttir
Í gær

Ása föst í hryllingshúsinu: „Fólk gengur stöðugt framhjá húsinu, tekur myndir og bendir“

Ása föst í hryllingshúsinu: „Fólk gengur stöðugt framhjá húsinu, tekur myndir og bendir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést