fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fréttir

Sjö ára drengur festist í frárennsli sundlaugar og drukknaði á afmælisdaginn – „Barðist eins og ljón“

Kristinn H. Guðnason
Laugardaginn 25. apríl 2026 17:30

Gabriele var aðeins sjö ára gamall þegar hann lést.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjö ára ítalskur drengur, Gabriele Petrucci, lést á sjö ára afmælisdaginn sinn þegar hann festist í frárennslissogi sundlaugar. Fjölskyldan var í ferðalagi á hóteli í Castelforte, norðan við Napolí.

Breska blaðið The Sun greinir frá þessu.

Hið hrikalega slys átti sér stað laugardaginn 18. apríl síðstaliðinn á hótelinu Complesso Termale Vescine þar sem fjölskyldan var samankomin með vinum til þess að fagna afmæli Gabriele.

Gabriele var að leika sér í einni sundlauginni þegar hann festi sig í frárennslinu. Faðir hans, Antonello, segist hafa litið frá í andartak og þegar hann leit til baka þá sá hann ekki son sinn.

Gátu ekki losað hann

Báðir foreldrarnir voru aðeins nokkra metra í burtu og sundlaugin var ekki djúp. En það tókst ekki að bjarga honum.

„Ég sá litla líkamann hans Gabriele fastan í frárennslispípunni,“ segir Antenello harmi sleginn. „Ég reyndi að toga hann í burtu. Þrjár manneskjur komu til að hjálpa mér en það dugði ekki til. Við gátum ekki losað hann.“

Starfsfólk hótelsins slökkti strax á pumpunni til að hægt væri að losa Gabriele.

„Hendin á honum var fjólublá. Hann barðist eins og ljón,“ segir Antonello.

Manndrápsrannsókn

Lögreglurannsókn er hafin á málinu. Frumrannsókn bendir til þess að það hafi vantað öryggisgrind yfir frárennslið. Málið er litið mjög alvarlegum augum og fjórir einstaklingar, þar á meðal forstjórar hótelsins, hafa nú stöðu grunaðs manns. Málið er rannsakað sem manndrápsmál.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Risastórt kókaínmál á Austurlandi

Risastórt kókaínmál á Austurlandi
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Gylfi furðar sig á frétt Morgunblaðsins – „Hrein og klár afvegaleiðun umræðunnar!“

Gylfi furðar sig á frétt Morgunblaðsins – „Hrein og klár afvegaleiðun umræðunnar!“
Fréttir
Í gær

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“
Fréttir
Í gær

Jafn vel Hollendingum blöskrar verðlagið á Íslandi – „Þig grunar ekki hversu sjúklega gráðugir Íslendingar geta verið“

Jafn vel Hollendingum blöskrar verðlagið á Íslandi – „Þig grunar ekki hversu sjúklega gráðugir Íslendingar geta verið“
Fréttir
Í gær

Gylfi Þór minnist móður sinnar sem var myrt – „Ég mun kveikja á kerti í kvöld“

Gylfi Þór minnist móður sinnar sem var myrt – „Ég mun kveikja á kerti í kvöld“
Fréttir
Í gær

Ása föst í hryllingshúsinu: „Fólk gengur stöðugt framhjá húsinu, tekur myndir og bendir“

Ása föst í hryllingshúsinu: „Fólk gengur stöðugt framhjá húsinu, tekur myndir og bendir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést