fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Fréttir

Krabbameinssjúklingi synjað um bætur – Segist vera lömuð eftir meðferðina

Jakob Snævar Ólafsson
Miðvikudaginn 11. mars 2026 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Úrskurðarnefnd velferðarmála hefur staðfest niðurstöðu Sjúkratrygginga Íslands sem synjaði konu um bætur úr sjúklingatryggingu. Sagðist konan hafa orðið fyrir mænuskaða í krabbameinsmeðferð á Landspítalanum og lamast í fótum.

Í kæru konunnar til nefndarinnar kom fram að hún hafi verið lögð inn á Landspítalann vegna krabbameinsmeðferðar. Hún hafi verið send í tölvusneiðmyndatöku þar sem harkaleg meðferð starfsmanna hafi leitt til varanlegs mænuskaða og lömunar í neðri útlimum. Eftir atvikið hafi hún verið bundin við rafmagnshjólastól og dvelji nú á hjúkrunarheimili þar sem sjálfsbjargargeta hennar sé lítil. Umrætt atvik hafi ekki verið tilkynnt til embættis landlæknis, eins og lög geri ráð fyrir.

Konan sótti um bætur úr sjúklingatryggingu hjá Sjúkratryggingum Íslands í ágúst 2022.

Lögmanni hennar barst svar í maí 2025 þar sem umsókninni var synjað.

Í ákvörðun Sjúkratrygginga kom fram að ástand konunnar væri afleiðing grunnsjúkdóms hennar, þ.e. krónískra bakverkja, brota í hrygg sem hafi verið til staðar áður en umrædd myndataka hafi farið fram og beingisnunar. Því væru ekki nægilegar líkur á orsakatengslum milli meðferðarinnar á Landspítalanum og heilsutjónsins og skilyrði fyrir greiðslu bóta úr sjúklingatryggingu því ekki uppfyllt.

Í kærunni andmælti konan þessu harðlega og sagði ástand hennar vera beina afleiðingu hinnar harkalegu meðferðar og að ástandið hefði snarversnað eftir meðferðina og því ætti hún rétt á bótum úr sjúklingatryggingu, samkvæmt ákvæðum þágildandi laga.

Gat gengið fyrst

Einnig kom fram í kærunni að auk áðurnefndra raka Sjúkratrygginga hafi stofnunin viljað meina að konan hafi getað gengið eftir myndatökuna en þrátt fyrir þessi rök hafi skyndileg versnun á ástandi hennar og lömun átt sér stað í kjölfar meðferðarinnar á Landspítalanum. Til að sýna fram á orsakatengslin og hrekja þau rök sem byggi á undirliggjandi sjúkdómum væri nauðsynlegt að afla nýrra og óháðra læknisfræðilegra álita. Slík álit, frá sérfræðingum í taugalækningum, bæklunarskurðlækningum og/eða endurhæfingarlækningum, gæti skýrt hvernig harkaleg meðferð við myndatöku, jafnvel á viðkvæmum hrygg, gæti valdið eða aukið líkur á mænuskaða umfram það sem ætla hafi mátt miðað við undirliggjandi ástand. Þau gætu einnig sýnt fram á hvort tjónið væri aðallega vegna meðferðarinnar en ekki eingöngu undirliggjandi sjúkdóma eða ekki. Sjúkratryggingar Íslands hafi ekkert gert í þá veru að afla slíkra álita.

Var þess krafist að synjunin yrði á þessum forsendum felld úr gildi en einnig var vísað til þess að Landspítalinn hafi vanrækt skyldu sína til að veita upplýsingar og spítalinn hafi brotið lög með því að tilkynna ekki um atvikið til embættis landlæknis. Var í kærunni fullyrt að þessi vanræksla gæti bent til þess að Landspítalinn hafi reynt að draga úr mikilvægi atviksins eða fela það sem raunverulega hafi gerst og hefði það talsverð áhrif á sönnunarbyrði málsins. Vegna þessa hafi synjun Sjúkratrygginga á umsókn um bætur úr sjúklingatryggingu byggt á ófullnægjandi gögnum og vegna þess galla á málsmeðferðinni yrði að fella synjunina úr gildi.

Sjúkratryggingar vísuðu í andsvörum sínum aðallega til rökstuðnings stofnunarinnar í hinni kærðu ákvörðun en bættu við að mál konunnar hefði verið yfirfarið af lækni með sérfræðiþekkingu í lyflækningum ásamt bæklunarlækni. Þá hafi málið verið tekið fyrir á fundi fagteymis í sjúklingatryggingu en þar sitji ásamt lögfræðingum, læknir með sérhæfingu í taugalækningum og læknir með sérhæfingu í atvinnusjúkdómum. Hvað varði kvartanir konunnar um að atvikið hafi, af hálfu Landspítalans, ekki verið tilkynnt til embættis landlæknis þá beri að beina slíkum kvörtunum til umrædds embættis.

Hryggurinn

Í úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála er vitnað í ákvörðun Sjúkratrygginga þar sem kom fram að konan sé með samvaxna hryggjarliði. Slíkt ástand valdi því að hryggurinn verði stífari en ella og viðkvæmari fyrir hnjaski og brotni auðveldlega. Þá verði brotin einnig mjög óstöðug og geti óstöðugt brot endað með mænusköddun og lömun. Almennt sé ráðlögð aðgerð, þar sem svokölluð spenging sé framkvæmd, ef ástand sjúklings leyfi. Í tilfelli konunnar hafi spenging ekki verið valkostur þar sem hún hafi verið með gríðarlega beingisnun sem hafi gert það ómögulegt fyrir lækna að framkvæma spengingaraðgerð.

Segja Sjúkratryggingar ekkert koma fram í sjúkraskrárgögnum um að eitthvað hafi farið úrskeiðis í myndatökunni og raunar hafi merki um brot í hryggnum sést í fyrri myndatöku. Vill stofnunin því meina að gögn málsins bentu ekki til að konan hefði orðið fyrir heilsutjóni í myndatökunni á Landspítalanum.

Úrskurðarnefnd velferðamála tekur undir með Sjúkratryggingum í sinni niðurstöðu. Konan hafi gengið eftir myndatökuna en síðar greinst með brot í hryggnum og síðan vaknað með lömun í fótum. Ekki verði ráðið að hryggbrot konunnar og lömun sé hægt að rekja til myndatökunnar á Landspítalanum heldur megi rekja ástand konunnar til sjúkdóms hennar.

Synjun á umsókn konunnar um bætur úr sjúklingatryggingu var því staðfest.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Margt athyglisvert á nýjum lista Forbes yfir þá ríkustu í heimi

Margt athyglisvert á nýjum lista Forbes yfir þá ríkustu í heimi
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Andri lætur Þorstein finna fyrir því: Leist ekki illa á hann „fyrr en hann fór í þetta prinsaviðtal“

Andri lætur Þorstein finna fyrir því: Leist ekki illa á hann „fyrr en hann fór í þetta prinsaviðtal“
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Erindi Heimis Más um stækkun hafnað

Erindi Heimis Más um stækkun hafnað
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Segist skorta þekkingu til að athuga frekar aðkomu Matvælastofnunar að málum sem varða slæma meðferð á dýrum

Segist skorta þekkingu til að athuga frekar aðkomu Matvælastofnunar að málum sem varða slæma meðferð á dýrum
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Reyndi að taka á móti stórri kókaínsendingu á heimili sínu

Reyndi að taka á móti stórri kókaínsendingu á heimili sínu
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Dagur segir Miðflokkinn þurfa að gera hreint fyrir sínum dyrum vegna frétta um tengsl við MAGA hreyfinguna

Dagur segir Miðflokkinn þurfa að gera hreint fyrir sínum dyrum vegna frétta um tengsl við MAGA hreyfinguna