fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Fréttir

Hafnarfjarðarbær biðst forláts á röngum texta

Jakob Snævar Ólafsson
Miðvikudaginn 11. mars 2026 13:34

Ráðhús Hafnarfjarðar/Mynd: Ja.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eins og DV greindi frá síðastliðinn mánudag hefur umboðsmaður Alþingis komist að þeirri niðurstöðu, eftir kvörtun foreldris, að Hafnarfjarðarbær þurfi ekki frekar en önnur sveitarfélög í landinu að útvega nemendum í grunnskólum ritföng. Bærinn segir að vegna sóunar hafi verið ákveðið að hætta því. Þó kom fram á heimasíðu bæjarins að hann útvegi nemendum ritföng og skilaboðin frá bænum virtust því misvísandi. Bærinn biðst afsökunar á þessu og heimasíðan hefur verið leiðrétt.

Sveitarfélög þurfa ekki að útvega grunnskólabörnum ritföng – Misvísandi skilaboð frá Hafnarfjarðarbæ

DV sendi Hafnarfjarðarbæ skriflega fyrirspurn vegna þessa misræmis og svör hafa nú borist.

Spurt var í fyrsta lagi til hvort Hafnarfjarðarbær útvegi nemendum í grunnskólum bæjarins öll nauðsynleg ritföng sem þeir þurfa að nota í skólanum:

„Hafnarfjarðarbær útvegar bækur og stílabækur. Allt nema skriffæri.“

Spurt var því næst að ef svo væri ekki hvort að bærinn hefði einhvern tímann útvegað nemendum ritföng. Ef svo væri á hvaða tímabili það hafi staðið yfir, hvenær hafi verið ákveðið að hætta því og hver hafi verið rökin fyrir þeim breytingum:

„Á tímabilinu 2018-2024 fengu nemendur öll námsgögn, þar á meðal skriffæri. Frá 2024 fá nemendur öll námsgögn utan skriffæra í skólanum. Snúið var frá ákvörðuninni vegna sóunar og óhagkvæmrar nýtingar opinberra fjármuna.“

Spurt var að lokum að ef svarið við fyrstu spurningunni væri nei hvers vegna stæði þá hið gagnstæða á heimasíðu bæjarins og hvort ekki væri óheppilegt að sveitarfélagið sendi foreldrum grunnskólabarna í bænum svo misvísandi skilaboð:

„Texti hefur verið uppfærður. Við höfum þegar breytt heimasíðunni i samræmi við þessa ákvörðun og biðjumst afsökunar á því að það hafi ekki verið gert fyrr.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Stofnandi Viðreisnar segir að þetta sé leiðin til að koma Samfylkingunni frá völdum

Stofnandi Viðreisnar segir að þetta sé leiðin til að koma Samfylkingunni frá völdum
Fréttir
Í gær

Krafði leigjanda um háar bætur fyrir stórskemmt starfsmannahúsnæði – Tapaði á því að hafa áður kennt Veitum um

Krafði leigjanda um háar bætur fyrir stórskemmt starfsmannahúsnæði – Tapaði á því að hafa áður kennt Veitum um
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Greip til óvenjulegs vopns til að ógna lögreglumönnum

Greip til óvenjulegs vopns til að ógna lögreglumönnum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Dorrit harðlega gagnrýnd fyrir að nudda sér upp við hægri öfgamanninn Farage – „Ótrúlega ógeðfelldur maður“

Dorrit harðlega gagnrýnd fyrir að nudda sér upp við hægri öfgamanninn Farage – „Ótrúlega ógeðfelldur maður“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heiða Björg svarar fyrir sig og birtir kortayfirlitið – „Á myndinni má sjá öll útgjöld mín“

Heiða Björg svarar fyrir sig og birtir kortayfirlitið – „Á myndinni má sjá öll útgjöld mín“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Snorri segir að íslenska skólakerfið hafi ekki verið hannað til að taka á móti öllum þessum erlendu börnum

Snorri segir að íslenska skólakerfið hafi ekki verið hannað til að taka á móti öllum þessum erlendu börnum