fbpx
Laugardagur 11.apríl 2026
Fréttir

Finnsku fiðlurokki spáð sigri í Eurovision

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 11. mars 2026 14:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, fer fram í Vín í Austurríki 12., 14. og 16. maí.

Líkt og fyrri ár eru veðbankar komnir í gang og vefurinn Eurovisionworld spáir finnska laginu sigri með vinningslíkur upp á 26%. Frakkland er í öðru sæti með 12% og Danmörk í því þriðja með 9%.

Grikkland, Ástralía, Tékkland, Ísrael, Svíþjóð, Kýpur og Úkraína skipa næstu sæti.

Finnska lagið heitir Liekinheitin og er flutt af dúett, fiðluleikaranum Lindu Lampenius og söngvaranum Pete Parkkonen. Lagið er sagt blanda af klassískri tónlist, rokki og danstónlist.

Finnland hefur aðeins einu sinni unnið Eurovision, árið 2006 þegar Lordi vann með lagið Hard Rock Hallelujah.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Ekki í fyrsta sinn sem mistök eiga sér stað við birtingu andlátstilkynninga

Ekki í fyrsta sinn sem mistök eiga sér stað við birtingu andlátstilkynninga
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Krefjast þess að fá sæti við borðið eftir tilkynningu ríkisstjórnarinnar – „Við verðum ekki hunsuð“

Krefjast þess að fá sæti við borðið eftir tilkynningu ríkisstjórnarinnar – „Við verðum ekki hunsuð“