fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Erindi Heimis Más um stækkun hafnað

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 11. mars 2026 08:03

Heimir Már Pétursson. Mynd: Flokkur fólksins.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erindi Heimis Más Péturssonar, framkvæmdastjóra og upplýsingafulltrúa þingflokks Flokks fólksins, um stækkun raðhúss hans í vesturbænum í Reykjavík, var hafnað af skipulagsfulltrúa.

Erindið var tekið fyrir á fundi skipulagsfulltrúa 24. febrúar síðastliðinn:

„Lögð fram fyrirspurn Heimis Más Péturssonar, dags. 29. nóvember 2025, um hækkun og stækkun hússins. Einnig eru lögð fram fylgigögn; skissa, yfirlitsmyndir af jarðhæð og 3. hæð og ljósmyndir. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 24. febrúar 2026. Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 24. febrúar 2026.“

Heimir Már óskaði eftir að stækka húsið þannig að það næði þremur metrum framar og bæta við einni hæð. Kemur fram í umsögn skipulagsulltrúa að umrædd breyting samræmist ekki skipulagi.

Morgunblaðið greinir frá að Heimir Már hafi keypt húsið 20. desember árið 1999, hann hefur því átt húsið í 26 ár. Húsið er 47,8 fm á tveimur hæðum, reist árið 1928 og er á baklóð. Húsið er í raun einbýlishús, en skráð sem raðhús þar sem það er áfast við annað hús.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar