fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
Fréttir

Pönkgoðsögn og Íslandsvinur fékk heilablóðfall – „Vinstri fóturinn féll saman undan mér“

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 11. mars 2026 10:30

Jello Biafra er einn áhrifamesti pönkari Bandaríkjanna. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pönkgoðsögnin Jello Biafra, fyrrverandi söngvari hljómsveitarinnar Dead Kennedys, var lagður inn á spítala með alvarlega heilablæðingu. Ástand hans er nú stöðugt en hann mun þurfa langa endurhæfingu.

Biafra, eða Eric Reed Boucher, er nú orðinn 67 ára gamall. Hann gerði garðinn frægan með Dead Kennedys sem var ein frægasta pönkhljómsveit Bandaríkjanna. Hljómsveitin var með beitta róttæka pólitíska texta með áherslu á félagslegt réttlæti og mannréttindi og var ekki hrædd við að ögra valdinu.

Eftir að honum sinnaðist við aðra meðlimi fór Biafra sína eigin leið, bæði í öðrum hljómsveitum og sem ræðuhaldari. Meðal annars kom hann til Íslands sumarið 2001 og messaði yfir Íslendingum á skemmtistaðnum Gauki á Stöng.

Á laugardaginn hneig hinn aldni pönkari niður á heimili sínu, með heilablæðingu sem orsakaðist af of háum blóðþrýstingi.

„Ég fór fram úr rúminu af því að ég þurfti að pissa. Vinstri fóturinn féll saman undan mér og ég féll í gólfið,“ sagði Biafra. „Ég gat ekki einu sinni varið mig fallinu með vinstri hendinni því að hún virkaði heldur ekki. Ég reyndi að komast aftur á fætur en gat það ekki. Ég áttaði mig á því að ég hafði fallið og gat ekki staðið aftur upp. Á þeim tímapunkti hugsaði ég: Andskotinn, ég er að fá heilablóðfall.“

Biafra er nú á sjúkrahúsi og er ástand hans stöðugt. Hins vegar er talið að hann muni þurfa langa endurhæfingu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Könnun: Viðreisnarfólk hrifið af veggjöldum en Sósíalistar alls ekki

Könnun: Viðreisnarfólk hrifið af veggjöldum en Sósíalistar alls ekki
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Bónus og Hagkaup lækka verð á hundruðum vara vegna nýs innkaupasamstarfs

Bónus og Hagkaup lækka verð á hundruðum vara vegna nýs innkaupasamstarfs
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Salmonella fannst í hamborgara

Salmonella fannst í hamborgara
Fréttir
Í gær

Ekkert verður af samruna Arion og Kviku – Þetta er ástæðan

Ekkert verður af samruna Arion og Kviku – Þetta er ástæðan
Fréttir
Í gær

Sauð upp úr á Kópaskeri þegar tveimur aðkomumönnum lenti saman – Báðir ákærðir og sakfelldir

Sauð upp úr á Kópaskeri þegar tveimur aðkomumönnum lenti saman – Báðir ákærðir og sakfelldir
Fréttir
Í gær

Varaborgarfulltrúi varð fyrir opinberun í gær – „Það er enginn að hlusta“

Varaborgarfulltrúi varð fyrir opinberun í gær – „Það er enginn að hlusta“
Fréttir
Í gær

Vægur dómur fallinn yfir Helga Bjarti vegna kynferðisbrots gegn dreng í Hafnarfirði

Vægur dómur fallinn yfir Helga Bjarti vegna kynferðisbrots gegn dreng í Hafnarfirði