fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fréttir

Barnaheill hefja neyðarsöfnun fyrir börn í Mið-Austurlöndum

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 6. mars 2026 13:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Barnaheill – Save the Children á Íslandi kalla eftir stuðningi við mannúðarstarf vegna harðnandi átaka í Mið-Austurlöndum. Lífi um 100 milljóna barna er nú ógnað á svæðinu. Áhrifanna gætir í að minnsta kosti í 15 löndum þar sem heimili, skólar og sjúkrahús hafa verið lögð í rúst. Börn búa þar við stöðugan ótta, ógn við lífi og heilsu, auk þess að eiga á hættu að vera neydd á flótta með fjölskyldum sínum.

„Hvert einasta stríð sem háð er í heiminum er stríð gegn börnum. Eins og alltaf sjáum við að börnin verða fyrir mestum skaða. Börn lifa í ótta, þau eru föst í skotlínunni í þessu stríði fullorðinna,“ segir Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla. „Hundruð barna hafa þegar verið drepin, og fleiri saklaus líf gætu tapast ef ekki er gripið til tafarlausra aðgerða. Stríð lúta alþjóðalögum, og það má aldrei leggja líf barna að veði í átökum.“

Neyðarsöfnun Barnaheilla er svar við neyðarkalli alþjóðasamtaka Barnaheilla – Save the Children sem sækjast eftir 20 milljörðum króna í mannúðarverkefni í Líbanon, Palestínu, Sýrlandi, Írak, Jórdaníu, Jemen, Tyrklandi, Pakistan og Afganistan.  Barnaheill á Íslandi veita nú þegar börnum lífsnauðsynlega þjónustu  í flóttamannabúðum í Norður- Írak.

Börn eiga aldrei að vera skotmark í stríði. Styðjum börn og fjölskyldur þeirra á svæðinu.

Hægt er að styrkja neyðarsöfnun Barnaheilla í gegnum heimasíðu samtakanna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Risastórt kókaínmál á Austurlandi

Risastórt kókaínmál á Austurlandi
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Gylfi furðar sig á frétt Morgunblaðsins – „Hrein og klár afvegaleiðun umræðunnar!“

Gylfi furðar sig á frétt Morgunblaðsins – „Hrein og klár afvegaleiðun umræðunnar!“
Fréttir
Í gær

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“
Fréttir
Í gær

Jafn vel Hollendingum blöskrar verðlagið á Íslandi – „Þig grunar ekki hversu sjúklega gráðugir Íslendingar geta verið“

Jafn vel Hollendingum blöskrar verðlagið á Íslandi – „Þig grunar ekki hversu sjúklega gráðugir Íslendingar geta verið“
Fréttir
Í gær

Gylfi Þór minnist móður sinnar sem var myrt – „Ég mun kveikja á kerti í kvöld“

Gylfi Þór minnist móður sinnar sem var myrt – „Ég mun kveikja á kerti í kvöld“
Fréttir
Í gær

Ása föst í hryllingshúsinu: „Fólk gengur stöðugt framhjá húsinu, tekur myndir og bendir“

Ása föst í hryllingshúsinu: „Fólk gengur stöðugt framhjá húsinu, tekur myndir og bendir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést