fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
Fréttir

Þekktir hlaupa í Hengil Ultra stærsta utanvegahlaupi landsins

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 6. júní 2025 20:33

Mynd frá Hengil Ultra árið 2024.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hengill Ultra Trail stærsta utanvegahlaup landsins fer fram á morgun, laugardaginn 7. júní i í Hveragerði. Þar koma saman bæði byrjendur og flestir öflugustu utanvegahlauparar landsins auk keppenda frá 27 þjóðlöndum og spreyta sig á vegalengdum frá 26 kílómetrum og upp í 106 kílómetrum. Á sama tíma er mikil aðsókn í 5 og 10 kílómetra brautirnar en allar hafa þær sama upphaf og endi í hjarta Hveragerðis. 

Á meðal þekktra hlaupara sem skráðir eru til leiks má nefna hlaupadrottninguna Mari Järsk, Rubin Pollock úr Kaleo, Aron Can, Arngrím Fannar Haraldsson, betur þekktur sem Addi Fannar í Skítamóral, Hugrúnu Egils fyrrum Ungfrú Ísland, og Magneu Björg úr LXS og vinkonur hennar.

Danska landsliðið sendir sterka sveit

Danska landsliðið í utanvegahlaupum sendir sterka sveit kvenna til þátttöku í Hengill Ultra. Allar fjórar hlaupakonurnar eru í fremstu röð innan utanvegahlaupa í Danmörku og munu keppa í hinum krefjandi en fallega Hengil. Þetta er i annað sinn sem danir senda sitt besta fólk til þátttöku. 

Mynd frá Hengil Ultra árið 2024.

Sölusýning og mikið um dýrðir

Það verður mikið um dýrðir í Hveragerði þessa helgi því ekki bara hlaupa um 1400 hlauparar um bæinn þennan dag heldur er dagskrá fyrir öll hvort sem þau hlaupa eða ekki. Það verður sölusýning á varningi tengdum utanvegahlaupum og almennri hreyfingu í íþróttahúsinu og götugrill við endamarkið sem öll eru velkomin í. Skítamórall mætir í götugrillið um miðjan dag og dj-arnir Doctor Victor og Anna Ármann halda uppi stuðinu. 

Mynd frá Hengil Ultra árið 2024.

Götugrill meistaranna

Götugrilli Hengils Ultra er stýrt af Fannari Geir Ólafssyni matreiðslumeistara og hans fólki í Kjötbúrinu sem er sælkeraverslun á Suðurlandi. Þar verða framreiddir 120 gr. gourmet hamborgarar og drykkir frá Coca Cola á Íslandi. Keppendur fá ávísun í grillið en gestir og gangandi geta einnig keypt sér veitingar og notið dagsins með keppendunum. Reist verður stórt veitingatjald við endamarkið í tengslum við götugrillið þar sem hægt verður að njóta veitinganna. Kynnir hlaupsins er eins og venjulega heimakonan Rakel Magnúsdóttir sem kynnt hefur hlaupið síðustu ár af mikilli snilld og alúð. 

Mynd frá Hengil Ultra árið 2024.

Víking tónlistarfestivalið opið öllum

Þá lýkur dagskránni um kvöldið með partýi í íþróttahúsinu þar sem Helgi Björns, Prettyboitjokkó og Klara Einars koma fram ásamt Doctor Victor ogÖnnu Ármann. Það er opið öllum og miðasala er í fullum gangi á hengillultra.is

106k voru ræstir út kl. 18 í dag. Enn þá eru nokkur pláss laus í 5k, 10k 26k og 53k, hægt er að skrá sig inn á hengillultra.is

Á síðunni hengillultra.is er einnig að finna afsláttarkóða fyrir þau sem vilja tryggja sér gistingu á Hótel Örk eða í Gróðurhúsinu. Þá er einnig frábært tjaldstæði í Hveragerði sem er opið allt árið. 

Hveragerði verður í hátíðarbúningi alla helgina enda er þetta einn stærsti árlegi viðburðurinn í bænum. Í Hveragerði eru margir frábærir veitingastaðir, mjög góð hótel og frábært tjaldsvæði við hliðina á mótssvæðinu. Hægt er að skoða, skrá sig og kaupa miða í Víking eftirpartýið um kvöldið á vikingamot.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur
Fréttir
Í gær

Sigmar boðar breytingar: „Minn­ing­in um lok­un­ina síðasta sum­ar er enn í fersku minni“

Sigmar boðar breytingar: „Minn­ing­in um lok­un­ina síðasta sum­ar er enn í fersku minni“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jón tekur upp hanskann fyrir múslimana á Keflavíkurflugvelli – „Sé ekki að þessir karlangar hafi brotið neitt af sér“

Jón tekur upp hanskann fyrir múslimana á Keflavíkurflugvelli – „Sé ekki að þessir karlangar hafi brotið neitt af sér“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Flaug til Íslands með stútfullt kælibox af mat – „Þetta sparaði okkur stórfé“

Flaug til Íslands með stútfullt kælibox af mat – „Þetta sparaði okkur stórfé“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Netverjar keppast við að hringja í númerið sem sendi Semu Erlu þessi viðbjóðslegu skilaboð

Netverjar keppast við að hringja í númerið sem sendi Semu Erlu þessi viðbjóðslegu skilaboð