fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fréttir

Snorri rýfur þögnina: Stórfurðulegir dagar að baki – Tekur til sín einn hluta gagnrýninnar

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 4. september 2025 13:14

Snorri Másson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, hefur rofið þögnina eftir að hafa setið undir harðri gagnrýni síðustu daga eftir viðtal í Kastljósi á mánudagskvöld.

Snorri birtir færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann tjáir sig um síðustu daga.

„Eftir umtalað sjónvarpsviðtal á mánudaginn eru að baki líklega undarlegustu nokkrir dagar á mínum stutta stjórnmálaferli. Vanstillt viðbrögð á netinu hafa sannarlega tekið út yfir allan þjófabálk,” segir hann og heldur áfram:

„Efnislega vekur helst athygli mína þar að jafnan er lagt út af einhverju sem ég hef aldrei sagt. Mér eru gerð upp viðhorf og ummæli. Sú staðreynd hefur þó ekki dregið úr stóryrðunum, sem sumum er beint að persónu minni og jafnvel fjölskyldu.”

Snorri segir að þetta sé þó aðeins það sem maður sér á yfirborði samfélagsmiðlanna.

„Á sama tíma fæ ég ekki svarað öllum þeim straumi skilaboða sem mér berast með þökkum fyrir að ræða þessi mál opinskátt og af virðingu,” segir hann og bætir við að þessum skilaboðum fylgi oftar en ekki lína um að sendandinn þori sjálfur ekki að lýsa sinni skoðun opinberlega, né lýsa yfir stuðningi við hans sjónarmið.

„Þessi viðbrögð, bæði heilaga vandlætingin en einnig þakklætisbylgjan, gera því ekki annað en staðfesta áhyggjur mínar í viðtalinu af afar viðsjárverðri þöggun sem hefur grafið um sig í okkar samfélagi,“ segir hann.

Hann segist þó taka einn hluta gagnrýninnar til sín og hún snýr að framíköllum hans í umræddum Kastljósþætti á mánudagskvöld.

„Mér hefur áður verið bent á að láta kappið ekki bera fegurðina ofurliði. Þetta er bagalegur ósiður í sjónvarpssal, einn af þeim sem ég lofa hér með formlega að losa mig alfarið við fyrir þrítugt. Ég er annars mættur til starfa. Leit í morgun við á vinnustofu um gervigreind og netöryggi. Þingið er sett í næstu viku. Við erum rétt að byrja!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Risastórt kókaínmál á Austurlandi

Risastórt kókaínmál á Austurlandi
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Gylfi furðar sig á frétt Morgunblaðsins – „Hrein og klár afvegaleiðun umræðunnar!“

Gylfi furðar sig á frétt Morgunblaðsins – „Hrein og klár afvegaleiðun umræðunnar!“
Fréttir
Í gær

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“
Fréttir
Í gær

Jafn vel Hollendingum blöskrar verðlagið á Íslandi – „Þig grunar ekki hversu sjúklega gráðugir Íslendingar geta verið“

Jafn vel Hollendingum blöskrar verðlagið á Íslandi – „Þig grunar ekki hversu sjúklega gráðugir Íslendingar geta verið“
Fréttir
Í gær

Gylfi Þór minnist móður sinnar sem var myrt – „Ég mun kveikja á kerti í kvöld“

Gylfi Þór minnist móður sinnar sem var myrt – „Ég mun kveikja á kerti í kvöld“
Fréttir
Í gær

Ása föst í hryllingshúsinu: „Fólk gengur stöðugt framhjá húsinu, tekur myndir og bendir“

Ása föst í hryllingshúsinu: „Fólk gengur stöðugt framhjá húsinu, tekur myndir og bendir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést