fbpx
Fimmtudagur 26.júní 2025
Pressan

Lögreglustjórinn reiður og sorgmæddur: „Pabbi, af hverju gerðirðu mér þetta?“

Pressan
Miðvikudaginn 25. júní 2025 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Hann er nákvæmlega þar sem hann á heima, í fangelsi,“ sagði Mike Chitwood, lögreglustjóri í Volusia-sýslu í Flórída, á blaðamannafundi á dögunum.

Vísaði hann þar í mál hins 33 ára Scott Allen Gardner sem er sakaður um að hafa skilið 18 mánaða son sinn eftir úti í bíl, í steikjandi sólinni í Flórída, á meðan hann fór sjálfur á barinn og svo í klippingu.

Skilinn eftir í þrjá tíma

Drengurinn var skilinn eftir í um þrjár klukkustundir og var úrskurðaður látinn loks þegar Mike hringdi eftir aðstoð. Þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang var líkamshiti hans nærri 42 gráður. Til að bíta höfuðið af skömminni var Mike mættur aftur á barinn síðar þetta sama kvöld.

Atvikið átti sér stað þann 6. júní síðastliðinn en á öryggismyndavélum mátti sjá þegar Mike lagði bifreið sinni klukkan 11 að morgni við barinn Hanky Panky‘s Lounge.

Hann sneri aftur í bílinn um þremur klukkustundum og nokkrum bjórum síðar og tók þá eftir því að sonur hans var meðvitundarlaus í aftursætinu. Hann ók heim til móður sinnar þar sem lögregla og sjúkralið komu á vettvang en sem fyrr segir var drengurinn litli, Sebastian, þegar látinn.

Ekkert nema skítseiði

Á blaðamannafundi í vikunni var Mike býsna ómyrkur í máli og kallaði hann föðurinn öllum illum nöfnum. „Hann sýndi lögreglumönnum, læknum og öðru heilbrigðisstarfsfólki skítlega framkomu. Þessi maður er ekkert nema skítseiði.“

Gardner sagði við lögreglu að hann hefði skilið gluggana í bílnum eftir opna og þá hefði hann skilið litla viftu, sem knúin er rafhlöðum, eftir í gangi í bílnum.

Á fundinum sagði Mike að faðirinn ætti sér engar málsbætur. Hann hefði aldrei, ekki einu sinni á þessum þremur tímum, kíkt á son sinn og athugað ástand hans. Hefði hann gert það væri drengurinn hugsanlega á lífi í dag. Mjög heitt var í veðri umræddan dag og segir Mike að hitinn í bílnum hafi farið vel yfir 40 gráður.

Eftir að hafa yfirgefið sjúkrahúsið þar sem Sebastian var úrskurðaður látinn segir Mike að hann hafi farið til móður sinnar og fóru þau saman á barinn um kvöldið.

„Faðir ársins, barnið þitt er dáið og rannsókn er í fullum gangi, hvað gerir hann? Hann sækir mömmu sína og þau fara á barinn í kokteila.“

Gardner var handtekinn þann 19. júní og ákærður fyrir manndráp. Hann á að öllum líkindum þungan fangelsisdóm yfir höfði sér.

„Það er ekki til sú refsing sem gæti nokkru sinni passað við þann glæp sem hér var framinn. Það fer gegn allri siðferðiskennd að þetta hafi yfir höfuð getað gerst. Ég vona að í hvert skipti sem hann lokar augunum á kvöldin og alla morgna þegar hann opnar þau sjái hann son sinn spyrjandi: „Pabbi, af hverju gerðirðu mér þetta?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Air India varað við vegna „alvarlegra brota“ á vinnutíma flugmanna

Air India varað við vegna „alvarlegra brota“ á vinnutíma flugmanna
Pressan
Í gær

Kennslukona á 60 ára fangelsi yfir höfði sér – Beitti nemanda kynferðislegu ofbeldi

Kennslukona á 60 ára fangelsi yfir höfði sér – Beitti nemanda kynferðislegu ofbeldi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Brúðkaupið breyttist í blóðbað

Brúðkaupið breyttist í blóðbað
Pressan
Fyrir 3 dögum

Áhrifavaldur hvarf og lögreglu beið ólýsanlegur hryllingur í súpupotti

Áhrifavaldur hvarf og lögreglu beið ólýsanlegur hryllingur í súpupotti