fbpx
Föstudagur 16.maí 2025
Fréttir

Óttast að ákvæðið verði notað til að hindra að fatlað fólk flytji í Hafnarfjörð – „Ætti að geta valið sér búsetu eins og aðrir í samfélaginu“

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 15. maí 2025 18:30

Árni og félagar hans í Samfylkingunni vilja að gögnin verði birt.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í vetur setti meirihlutinn í Hafnarfirði ákvæði um að fatlað fólk með miklar þjónustuþarfir þurfi að hafa samráð við bæinn um búsetuform. ÖBÍ og Þroskahjálp hafa sent bæjarstjóra erindi um hvernig þetta samræmist lögum og Samfylkingin í minnihluta bæjarstjórnar óttast að ákvæðið verði notað til að hindra að fatlað fólk flytji í bæinn.

„Maður hefur áhyggjur af því að þetta gæti verið notað þannig,“ segir Árni Rúnar Þorvaldsson bæjarfulltrúi Samfylkingar. „Það er alveg klárt mál og það á ekki að vera þannig. Fatlað fólk ætti að geta valið sér búsetu eins og aðrir í samfélaginu.“

Ákvæðinu mótmælt

Ákvæðið sem meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks bætti inn í úthlutunarreglur félagslegs húsnæðis er eftirfarandi:

Einstaklingur sem óskar eftir þjónustu Hafnarfjarðarkaupstaðar á grundvelli SIS-mats sem krefst víðtækrar þjónustu þarf að hafa samráð við sveitarfélagið um búsetuform þannig að hægt sé að samræma þjónustuþætti á vegum sveitarfélagsins liggi það fyrir að viðkomandi einstaklingur muni óska eftir þjónustu sveitarfélagsins.“

Hafa bæði ÖBÍ og Þroskahjálp sent bæjarstjóra bréf vegna málsins þar sem spurt er hvernig ákvæðið samræmist lögum. Þá hefur samráðshópur um málefni fatlaðs fólks, svokallað notendaráð, einnig lagst alfarið gegn ákvæðinu og telur það ganga gegn lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Málið þvælt

Á fundi fjölskylduráðs á þriðjudag, 13. maí, kröfðust fulltrúar Samfylkingar að bréfið yrði lagt fram til umræðu í málinu sem og öll önnur gögn. Var því hafnað á grundvelli þess að verið væri að taka gögnin saman.

„Það er verið að þvæla málið að óþörfu,“ segir Árni Rúnar. „Við teljum að þetta eigi brýnt erindi við málið. Við viljum fá þau gögn sem eru send til bæjarins og varða mál sem við erum að fjalla um. Við skiljum ekki af hverju það er ekki hægt að leggja þau fram þegar við biðjum um það. Við teljum að þarna séu brýnar spurningar sem eigi erindi við ráðið sem kom að því að setja þessar reglur.“

Meðal annars spurningar um hvernig þetta ákvæði samræmist lögum og hvort það sé ekki verið að mismuna fötluðu fólki með því.

Hindrun fyrir fatlað fólk

„Fólk sem flytur í bæinn þarf alla jafna ekki að hafa samráð við sveitarfélagið um það. Hvers vegna ætti að setja slíka hindrun upp fyrir fatlað fólk?“ spyr Árni Rúnar. „Það skiljum við ekki og erum á móti þessu ákvæði. Þarna er verið að mismuna fötluðu fólki og setja auka kröfur á það sem okkur finnst ekki samræmast góðri stjórnsýslu.“

Eins og áður segir þá hefur hann einnig áhyggjur af því að ákvæðið verði notað til þess að hindra að fatlað fólk flytji í bæinn.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Guðni snýr sér að Kristrúnu og skorar á hana – Úlfari kastað út eins og hundi á hnakkadrambinu

Guðni snýr sér að Kristrúnu og skorar á hana – Úlfari kastað út eins og hundi á hnakkadrambinu
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Fanga-gambítur Pútíns kemur í bakið á honum

Fanga-gambítur Pútíns kemur í bakið á honum
Fréttir
Í gær

Trump hegðar sér eins og útsendari guðs – Gæti endað sem „Trölli sem stal jólunum“

Trump hegðar sér eins og útsendari guðs – Gæti endað sem „Trölli sem stal jólunum“
Fréttir
Í gær

Segja fjármál Kópavogsbæjar vera í uppnámi

Segja fjármál Kópavogsbæjar vera í uppnámi
Fréttir
Í gær

Sjötug kona varð fyrir árás og eftirför unglinga í Kópavogi – „Mér fannst þetta skuggalegt“

Sjötug kona varð fyrir árás og eftirför unglinga í Kópavogi – „Mér fannst þetta skuggalegt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Geymdi dauðan frænda sinn bílskúrnum í fimm ár – Keypti eðlur fyrir bæturnar

Geymdi dauðan frænda sinn bílskúrnum í fimm ár – Keypti eðlur fyrir bæturnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

VÆB áfram í Eurovision!

VÆB áfram í Eurovision!