fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
Fréttir

Íris Dögg ráðin framkvæmdastjóri geðheilbrigðisþjónustu

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 18. júlí 2024 07:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íris Dögg Harðardóttir, félagsráðgjafi og fjölskyldufræðingur, hefur verið ráðin í stöðu framkvæmdastjóra geðheilbrigðisþjónustu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) frá 15. ágúst 2024.  

Hún tekur við starfinu af Guðlaugu Unni Þorsteinsdóttur, sem hverfur til annarra starfa innan stofnunarinnar að eigin ósk, eins og segir í tilkynningu.

Íris er félagsráðgjafi að mennt og útskrifaðist frá University College Lillabælt árið 2011. Hún útskrifaðist með diplóma í fjölskyldumeðferð frá EHÍ 2018. Íris hefur starfað við geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og fullorðna síðastliðin 12 ár, á Landspítalanum og hjá Heilsugæslunni. Hún hefur víðtæka reynslu af þverfaglegri teymisvinnu og meðferðarleiðum innan geðheilbrigðiskerfisins.  Hún lauk meðal annars námi í Díaletískri atferlismeðferð (e. Dialectical Behavior Therapy) í Bandaríkjunum árið 2015 og hefur hlotið grunn- og framhaldsþjálfun í tengslamiðaðri fjölskyldumeðferð (e. Attachment based family therapy). 

Íris var ráðin í starf teymisstjóra og síðar svæðis- og fagstjóra geðheilsuteymis suður hjá HH 1. júní 2019. Teymið er þverfaglegt meðferðarteymi sem sinnir geðheilbrigðisþjónustu fyrir íbúa Kópavogs, Garðabæjar og Hafnafjarðar. Þjónustan var í upphafi ný og ómótuð og hefur Íris stýrt faglegri uppbyggingu hennar auk þess að móta menningu teymisins og starfsemi. Hún hefur ásamt öðrum stjórnendum geðheilsuteymanna komið að stefnumótun, uppbyggingu og framtíðarsýn þjónustunnar.  

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Áráttufullur perri í Reykjavík olli konum skelfingu – „Chupa Chupa“

Áráttufullur perri í Reykjavík olli konum skelfingu – „Chupa Chupa“
Fréttir
Í gær

Gullöld Donald Trump: Allt gengur forsetanum í hag

Gullöld Donald Trump: Allt gengur forsetanum í hag
Fréttir
Í gær

Hart tekist á um Fannborgarreitinn í Kópavogi – Bílastæði séu einhliða tekin af íbúum

Hart tekist á um Fannborgarreitinn í Kópavogi – Bílastæði séu einhliða tekin af íbúum
Fréttir
Í gær

Þorbjörg Sigríður vill þyngja refsingar í ofbeldismálum

Þorbjörg Sigríður vill þyngja refsingar í ofbeldismálum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fölsuðu bréf svo kennarar í Hofsstaðaskóla gætu fengið styrk til Frakklandsferðar – Kenna undirverktaka um

Fölsuðu bréf svo kennarar í Hofsstaðaskóla gætu fengið styrk til Frakklandsferðar – Kenna undirverktaka um
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rússar breyta um taktík – Írönsku drónarnir verða sífellt hættulegri

Rússar breyta um taktík – Írönsku drónarnir verða sífellt hættulegri