fbpx
Föstudagur 26.júlí 2024
Fréttir

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum

Björn Þorfinnsson
Þriðjudaginn 23. apríl 2024 17:30

Hluti keppenda á Íslandsmótinu. Héðinn er sá sem er standandi á myndinni

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Uppnám varð á Íslandsmótinu í skák nú fyrir stundu þegar stórmeistarinn Héðinn Steingrímsson mætti ekki til leiks í skák sinni gegn Lenku Ptacnikovu í sjöundu umferð mótsins. Mótið fer fram í golfskálanum við Hlíðarvöll í Mosfellsbæ en heimildir DV herma að Héðinn hafi undanfarna daga mótmælt hávaða sem berst af kylfuhöggum, hvini í golfboltum sem og dynkjum sem berast þegar boltarnir skella á tjöldum við golfherma í skálanum.

Gerði hann kröfu um að mótið yrði flutt en við því urðu fulltrúar Skáksambands Íslands, mótshaldara mótsins, ekki. Var sú ákvörðun tekin meðal annars á grundvelli þess að kvartanir hafa ekki borist frá öðrum keppendum.

Hefur slæm áhrif á mótið

Ljóst er að brotthvarf Héðins mun hafa mikil og slæm áhrif á mótið og jafnvel eyðileggja það ef marka má viðbrögð á Facebook-síðunni Íslenskir skákmenn. Mótið fer nefnilega þannig fram að tólf skákmenn tefla, allir við alla, um Íslandsmeistaratitilinn. Héðinn, sem hefur þrisvar orðið Íslandsmeistari og var fyrirfram meðal sigurstranglegustu keppenda, hefur átt erfitt uppdráttar í mótinu en hann gerði þó jafntefli við Hannes Hlífar Stefánsson, kollega sinn, sem er einn af þeim sem er í toppbaráttu mótsins.

Brotthvarf Héðins mun hins vegar þýða að  Helgi Áss Grétarsson, sem var efstur í mótinu fyrir umferðina í dag, mun fá ókeypis vinning sem og dýrmæta hvíld í 8. umferð mótsins sem fer fram á morgun. Ljóst er að ríkjandi Íslandsmeistari, Vignir Vatnar Stefánsson, sem var hálfum vinningi á eftir Helga fyrir umferð mótsins og hefur þegar lagt Héðinn að velli, kann kollega sínum litlar þakkir fyrir.

Afar fátítt er að einhver hætti í Íslandsmótinu í skák en síðast þegar það gerðist árið 2016 var um veikindi hjá viðkomandi keppanda að ræða. Þá gæti þessi ákvörðun Héðins dregið dilk á eftir sér og mögulega kostað hann keppnisbann í einhvern tíma.

Borðin tíu sentímetrum of stór

Uppátæki Héðins hafa áður ratað á síður fjölmiðla.

Árið 2016 hætti hann við þátttöku í stærsta móti ársins hérlendis, Reykjavík Open, af því að keppnisborðin voru 10 sentímetrum of stór miðað við tilmæli frá FIDE – alþjóðaskáksambandinu. Vakti ákvörðunin nokkra athygli enda var Héðinn ríkjandi Íslandsmeistari á þeim tíma. Var ekki brugist við kröfu Héðins um ný borð á skákstað því að engin annar keppandi hafði gert athugasemd við stærð þeirra.

Eltingaleikur í Elliðaárdal

Árið 2020 var Héðinn svo áminntur af dómstól Skáksambands Íslands fyrir rifrildi við kollega sinn Guðmund Kjartansson á Brim-mótaröð Taflfélags Reykjavíkur. Fréttablaðið fjallaði um málið á sínum tíma en þá hætti Héðinn í mótinu eftir að hafa rifist við Guðmund um hvort að skákborðið, sem þeir voru við það að hefja viðureign sína á, væri á miðju borðsins. Sitt sýndist hverjum um hvar miðja borðsins væri og að endingu

Atvikið átti eftir að draga enn frekari dilk á eftir sér því síðar sama dag ákváðu báðir keppendur að fara fyrir tilviljun í heilsubótagöngu í Elliðaárdal. Þegar þeir rákust á hvorn annan í dalnum fagra taldi Héðinn sig eiga eitthvað vantalað við Guðmund vegna málsins. Guðmundur lagði í kjölfarið á flótta og var Héðinn sagður hafa veitt honum eftirför sem fjallað var um í helstu fjölmiðlum landsins. Var það atvik líka kært til dómstóls Skáksambands Íslands sem vísaði þó málinu frá á þeim grundvelli að atvikið væri utan lögsögu dómstólsins.

Héðinn áfrýjaði síðar úrskurði dómstólsins, hafði árangur sem erfiði og var áminningin dregin tilbaka.

 

Hér geta lesendur kynnt sér úrslit og stöðuna í mótinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Bjórinn í Reykjavík dýrastur í Evrópu – Fjórði dýrasti í heiminum samkvæmt bjórkorti

Bjórinn í Reykjavík dýrastur í Evrópu – Fjórði dýrasti í heiminum samkvæmt bjórkorti
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Eigendur lúxusíbúða skoruðu sigur gegn vinsælum pílustað – Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fær á baukinn

Eigendur lúxusíbúða skoruðu sigur gegn vinsælum pílustað – Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fær á baukinn
Fréttir
Í gær

Bræður ráku pabba sinn úr fjölskyldufyrirtækinu í Grindavík – Ásakanir á víxl um tug milljóna fjárdrátt

Bræður ráku pabba sinn úr fjölskyldufyrirtækinu í Grindavík – Ásakanir á víxl um tug milljóna fjárdrátt
Fréttir
Í gær

Húseigandi í miðbænum grunlaus um heimild fyrir byggingu íbúðarhúss á lóð hans – Reyndi að kæra en var of seinn

Húseigandi í miðbænum grunlaus um heimild fyrir byggingu íbúðarhúss á lóð hans – Reyndi að kæra en var of seinn
Fréttir
Í gær

Siggi stormur furðulostinn yfir athæfi ferðamanna

Siggi stormur furðulostinn yfir athæfi ferðamanna
Fréttir
Í gær

Guðmunda hefur aldrei gleymt ungu stúlkunni sem sagði henni leyndarmál – „Oft fellt tár hennar vegna“

Guðmunda hefur aldrei gleymt ungu stúlkunni sem sagði henni leyndarmál – „Oft fellt tár hennar vegna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tveir ókunnugir menn voru skráðir á heimili hennar – Ekki þarf að fá samþykki eiganda eignarinnar

Tveir ókunnugir menn voru skráðir á heimili hennar – Ekki þarf að fá samþykki eiganda eignarinnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rússar bjóða íbúum Moskvu milljónir í vasann fyrir að skrá sig í herinn

Rússar bjóða íbúum Moskvu milljónir í vasann fyrir að skrá sig í herinn