fbpx
Föstudagur 24.mars 2023
Fréttir

Elon Musk hraunar yfir Harald og segir hann vera að sækjast eftir peningum

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 7. mars 2023 18:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ekki sér fyrir endann á magnaðri ritdeildu auðkýfingsins Elon Musk og íslenska frumvöðulsins Haraldar Inga Þorleifssonar á Twitter. Elon segir Harald vera að sækjast eftir hárri peningagreiðslu með framgöngu sinni á Twitter í dag.

Aðdragandi málsins er sá að Haraldur, sem var til skamms tíma starfsmaður Twitter í kjölfar þess að hann seldi Twitter fyrirtæki sitt Ueno, spurði auðkýfinginn hreint út hvort væri enn starfsmaður fyrirtækisins eða ekki. Fyrir skömmu var lokað á aðgang Haraldar að kerfum fyrirtækisins en hann hefur ekki fengið það staðfest hjá mannauðsdeildinni hvort honum hafi verið sagt upp eða ekki.

Sjá einnig: Twitter logar vegna ritdeilu Elon Musk og Haraldar

Skeytin hafa síðan gengið á milli mannanna í dag og samskipti þeirra vakið heimsathygli. Haraldur á inni háar samningsbundnar greiðslur frá Twitter vegna sölunnar á Ueno, starfsframlag hans var hluti af þeim samningi, en nú óttast Haraldur að  Elon ætli ekki að standa við gerða samninga.

Elon segir í nýlegu tísti að Haraldur sé með stóran og virtan Twitter-reikning og hann sé auðugur. Ástæðan fyrir því að hann hafi sótt að sér opinberlega sé sú að hann sé að sækjast eftir hárri peningagreisðlu. Hann hafi hins vegar skilað lítilli sem engri vinnu fyrir fyrirtækið síðustu fjóra mánuði. Tístið frá Elon verður síðan enn skrýtnara er hann heldur því fram að Haraldur hafi komið sér undan vinnu með þeirri afsökun að hann gæti ekki slegið á lyklaborð en núna sé hann að búa til Twitter-storm á lyklaborðinu sínu.

Haraldur virðist svara þessum skeytasendingum með myndbandi sem sýnir mann níðast á asna og hefnast illilega fyrir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Aðstæður erfiðar og krefjandi við banaslysið í Glym

Aðstæður erfiðar og krefjandi við banaslysið í Glym
Fréttir
Í gær

Bandamaður Pútíns varar við – „Afleiðingarnar fyrir alþjóðalög verða gríðarlegar“

Bandamaður Pútíns varar við – „Afleiðingarnar fyrir alþjóðalög verða gríðarlegar“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Minningarreikningur stofnaður fyrir systkini Þuríðar Örnu: „Skilur eftir sig tómarúm sem erfitt verður að fylla“

Minningarreikningur stofnaður fyrir systkini Þuríðar Örnu: „Skilur eftir sig tómarúm sem erfitt verður að fylla“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Móðir laut í lægra haldi fyrir Fæðingarorlofssjóði – Taldi að um hagsmunamál fyrir íslenska lækna væri að ræða

Móðir laut í lægra haldi fyrir Fæðingarorlofssjóði – Taldi að um hagsmunamál fyrir íslenska lækna væri að ræða
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að Kínverjar hafi sent Rússum vopn með leynd

Segir að Kínverjar hafi sent Rússum vopn með leynd
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gallharðir erlendir áróðursmeistarar Pútíns funduðu í Moskvu

Gallharðir erlendir áróðursmeistarar Pútíns funduðu í Moskvu