fbpx
Laugardagur 14.desember 2024
Fréttir

Daníel sakfelldur fyrir skattsvik – Komst í fréttir eftir að brúðkaupsveisla endaði á pizzastað

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 13. október 2023 17:00

Héraðsdómur Reykjavíkur. Mynd: Sigtryggur Ari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann 3. október síðastliðinn sakfelldi Héraðsdómur Reykjavík Daníel Sigurðsson fyrir skattalagabrot í rekstri fyrirtækis hans Geri allt slf.

Daníel var sakaður um að hafa staðið skil á röngum virðisaukaskattskýrslum félagsins fyrir árin 2015 til 2017. Vanframtalinn útskattur fyrir tímabilin var sagður nema samtals rétt tæplega einni milljón króna og offramtalinn innskattur rúmlega 5,3 milljónum.

Hann var auk þess sakaður um að hafa staðið skil á efnislega röngum skattframtölum fyrir Geri allt fyrir rekstrarárin 2014 og 2015. Nemur vanframtalinn tekjuskattur rúmlega 2,6 milljónum króna.

Fyrir sama tímabil var hann sakaður um virðisaukaskattsvik upp á tæplega 1,7 milljónir.

Lögmaður Daníels benti á fyrir dómi að málið hefði dregist úr hófi. Dómari tók undir það og tók mið af því við ákvörðun refsingar.

Var Daníel dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu sektar upp á 21,2 milljónir króna. Verði sektin ekki greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins skal Daníel sæta 300 daga fangelsi.

Samkvæmt heimildum DV mun Daníel áfrýja dómnum til Landsréttar.

Dóminn má lesa hér.

Brúðkaupsveisla endaði á pizzastað

Daníel Sigurðsson og fyrirtæki hans, Geri allt, hafa áður komið við sögu í dómskerfinu en árið 2020 var kveðinn upp dómur í einkamáli sem félagið Nýhugsun höfðaði á hendur Daníel og Geri allt vegna ógreidds reiknings fyrir leigu á veislutjaldi.

Sjá einnig: Draumabrúðkaup Daníels við Kleifarvatn endaði á pizzastað – „Ég trúði því ekki að þú myndir reyna að svíkja og pretta“

Geri allt og Daníel voru þá dæmd til að greiða Nýhugsun 185.000 krónur vegna hins ógreidda reiknings  en Nýhugsun hafði sett upp veislutjald fyrir brúðkaupsveislu í júlí árið 2018.

Samkvæmt tölvupóstasamskiptum á milli Daníels og Nýhugsunar sem birtast í dómnum kemur fram að samið hafði verið um leigu á 45 fermetra tjaldi. Leigan á tjaldinu átti að vera 30 þúsund krónur, en uppsetningin á því 155 þúsund krónur, fyrir virðisaukaskatt.

Umrædd brúðkaupsveisla var haldin við Kleifarvatn og átti að innihalda innkomu Daníels á þyrlu. Veislan virðist þó hafa farið úrskeiðis. Í dómnum segir að tjaldið hafi verið of lítið og vegna rigningar hafi rétt náðst að halda athöfnina áður en gestirnir fóru í bæinn á pizzastað.

„Gestir hafi brunað í bæinn og farið á staðinn Shake and Pizza í bjór og pitsu, en það hafi verið eini staðurinn sem hafi getað tekið við öllum þessum fjölda gesta með þessum fyrirvara.“

Eftir brúðkaupið sendi stefnandi málsins og forsvarsmaður Nýhugsunar reikning á Geri allt slf. sem nam 184. 573 krónur fyrir virðisaukaskatt. Daníel sendi í kjölfarið kvörtun vegna reikningsins í tölvupósti. Hann sagði að tilboðið hafi átt við stærra tjald með álgrind, en hann hafi fengið minna uppblásið tjald, sem ætti að hafa verið ódýrara, samkvæmt fyrri tölvupóstsamskiptum.

Forsvarsmaður Nýhugsunar mótmælti staðhæfingu Daníels, hann sagði að hann hafi fengið minna tjaldið á betra verði, eða 184. 573 króna í stað 192.000 króna. Hann sagði einnig að tímagjald á uppsetningu hafi verið meira vegna lélegra aðstæðna. Daníel svaraði því, hann sagði að tímagjaldið ætti ekki að skipta neinu og heimtaði að reikningurinn yrði lagaður.

„Þú virðist vera jafn óheiðarlegur og ósvífinn og talað er um“

Þá sendi forsvarsmaður Nýhugsunar á Daníel að hann væri tilbúinn að fara með málið fyrir dómstóla, væri reikningurinn ekki greiddur, auk þess sem hann hélt því fram að hafa margsinnis verið  varaður við því að vinna verk fyrir Daníel.

„Sæll Daníel, Þú fékkst ekki tilboð í minna tjaldið, þú fékkst aðeins þær upplýsingar að það væri á ,,betra verði“ sem það klárlega er. Það eru einu forsendurnar sem þú hafðir. Það kemur hvergi fram að Rent-A-Tent reikni verð út frá fermetra-fjölda og það höfum við aldrei gert. Ég er óhræddur við að reka þetta mál fyrir dómstólum, það er fín reynsla fyrir mig þar sem ég er lögfræðingur. Þú mátt ráðfæra þig við lögmanninn þinn um þá staðreynd að þú ert að láta félagið þitt greiða fyrir persónuleg útgjöld til þín. Ég geri ráð fyrir að þú vitir að það er ólöglegt og þér er ekki heimilt að nota reikninginn í bókhald félagsins. Þegar ég tilkynni þetta og þú þarft að greiða reikninginn persónulega þá má setja að upphæð reikningsins hækki í raun um 24%. Ég var ítrekaður varaður við að vinna þetta verk fyrir þig af aðilum sem þekkja til þín en ég trúði því ekki að þú myndir reyna að svíkja og pretta, sérstaklega þar sem verðið er það ódýrasta á landinu. Þú virðist vera jafn óheiðarlegur og ósvífinn og talað er um.“

Daníel og Geri allt slf. voru dæmd til að greiða reikninginn, sem var 184.574 krónur ásamt dráttarvöxtum, auk 350.000 krónur í málskostnað stefnanda. Í dómnum segir:

„Að mati dómsins verður hins vegar ekki séð á hvaða forsendum unnt sé að fallast á kröfu stefnanda um greiðslu dráttarvaxta frá 5. september 2018. Ágreiningslaust er í málinu að aðilar málsins sömdu aldrei um gjalddaga kröfu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Læknar samþykkja kjarasamning

Læknar samþykkja kjarasamning
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Alvotech ætlar að byggja þrjár leikskóla í Reykjavík fyrir starfsfólk sitt – „Við vildum finna lausnir“

Alvotech ætlar að byggja þrjár leikskóla í Reykjavík fyrir starfsfólk sitt – „Við vildum finna lausnir“
Fréttir
Í gær

Katrín upplifði sorg eftir Alþingiskosningarnar

Katrín upplifði sorg eftir Alþingiskosningarnar
Fréttir
Í gær

Útför Sólons fór fram í dag – „Mikið er ég reið og sorgmædd yfir aðgerðarleysi Icelandair í kjölfar andláts þíns“

Útför Sólons fór fram í dag – „Mikið er ég reið og sorgmædd yfir aðgerðarleysi Icelandair í kjölfar andláts þíns“
Fréttir
Í gær

Íslensk vötn ekki eins hrein og við hreykjum okkur af – Hættuleg eilífðarefni yfir mörkum í öllum sýnum

Íslensk vötn ekki eins hrein og við hreykjum okkur af – Hættuleg eilífðarefni yfir mörkum í öllum sýnum
Fréttir
Í gær

Henrietta segir foreldrajafnrétti stærsta jafnréttismálið – „Þetta misrétti hef ég upplifað á eigin skinni“

Henrietta segir foreldrajafnrétti stærsta jafnréttismálið – „Þetta misrétti hef ég upplifað á eigin skinni“