fbpx
Laugardagur 18.maí 2024
Fréttir

Fimm þingmenn vilja að dreifing jarðneskra leifa verði gefin frjáls

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 15. september 2023 10:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fimm þingmenn úr Sjálfsstæðisflokki, Pírötum, Framsóknarflokki og Vinstri-Hreyfingu hafa lagt fram frumvarp um að dreifing jarðneskra leifa verði gefin frjáls. Er það álit þingmannanna að töluverð opinber íhlutun þegar kemur að jarðneskum leifum fólks sé ónauðsynleg og einstaklingar eigi að hafa meira frelsi um hvernig og hvort jarðneskar leifar þeirra séu varðveittar, grafnar eða þeim dreift. 

Frumvarpið er lagt fyrir Alþingi í fimmta sinn, en það hlaut ekki afgreiðslu á síðasta þingi. Frumvarpið leggur til breytingu á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, nr. 36/1993 (dreifing ösku). Lagðar eru til eftirfarandi breytingar á sjöundu grein laganna:

2. mgr. orðast svo: Búa ber um öskuna í þar til gerðum duftkerum úr forgengilegu efni. Heimilt er að grafa kerin niður í grafarstæði eða leggja þau í leiði ef vandamenn, er greinir í 1. mgr. 47. gr., óska þess. Sé ákveðið að grafa duftker skal dýpt duftkersgrafar vera um 1 metri.

4. mgr. orðast svo: Virða ber ósk hins látna um hvar og hvernig ösku er dreift eða hún varðveitt sé ósk hins látna sú að askan sé ekki jarðsett. Um nánari reglur um dreifingu ösku látins manns fer samkvæmt reglugerð settri með heimild í 1. mgr. 50. Gr.

5. og 6. mgr. falla brott.

Þrátt fyrir að þingmennirnir leggi til að dreifing jarðneskra leifa verði gefin frjáls þarf áfram að búa um öskuna í þar til gerðum duftkerum eftir líkbrennslu. Aftur á móti verður gefið frjálst hvað gert verður við kerin. 

Með frumvarpinu er jafnframt lagt til að ekki verði kveðið á um skyldu til að grafa kerin niður í grafarstæði eða leggja þau í leiði vandamanna heldur verði um heimild að ræða. Sé hins vegar ákveðið að grafa ker í kirkjugarði skal fylgja ákvæði laganna.

Bálfarir hafa aukist

Fram kemur í greinargerð með frumvarpinu að bálfarir hafa aukist en árið 2017 voru þær 35% allra útfara. Segir þar að óskum um að dreifa ösku utan kirkjugarða hafi fjölgað. 

Í greinargerð er farið yfir hvernig dreifingu jarðneskra leifa er háttað á hinum Norðurlöndunum, en þar er dreifing ösku ekki takmörkuð eins mikið og hér, svo sem er varðar staðsetningu eða auðkenningu slíkra dreifingarstaða. 

Til að mynda þekkist á Norðurlöndunum að sérstakir skógar séu fyrir dreifingu líkamsleifa og þar megi setja upp minningarskjöld sem ættingjar geta svo vitjað og viðhaldið. Á Norðurlöndunum eru þó ákveðin skilyrði fyrir dreifingu ösku en þau eru almennt rýmri en hér tíðkast. Alla jafna þarf að tilkynna og/eða upplýsa um dreifingarstað ösku sem getur verið eftir atvikum háð leyfi stjórnvalda eða eiganda/umráðamanns lands.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Þorgerður Katrín las Bjarna pistilinn: „Ég vil hvetja fólk til þess að skoða heimabankann hjá sér“

Þorgerður Katrín las Bjarna pistilinn: „Ég vil hvetja fólk til þess að skoða heimabankann hjá sér“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Öryggisverðir fylgja Bjarna hvert fótmál

Öryggisverðir fylgja Bjarna hvert fótmál
Fréttir
Í gær

Par braut rúðu í fjölbýlishúsi

Par braut rúðu í fjölbýlishúsi
Fréttir
Í gær

Langveik ung kona fékk liðsauka í barningi sínum við Sjúkratryggingar – Sögð hafa þurft samþykki stofnunarinnar fyrir aðgerð sem læknir sagði nauðsynlega

Langveik ung kona fékk liðsauka í barningi sínum við Sjúkratryggingar – Sögð hafa þurft samþykki stofnunarinnar fyrir aðgerð sem læknir sagði nauðsynlega
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tommi ómyrkur í máli: Þetta er fólkið sem sagði nei – Banvænt aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar

Tommi ómyrkur í máli: Þetta er fólkið sem sagði nei – Banvænt aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigmundur segir skemmdarverk framið á íslenskri tungu og nefnir fjölmörg dæmi

Sigmundur segir skemmdarverk framið á íslenskri tungu og nefnir fjölmörg dæmi