fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
Fréttir

Þúfan tekin við rekstri Dyngjunnar – Viltu vera velunnari?

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 5. ágúst 2023 17:00

Þúfan Mynd: Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Almannaheillafélagið, Lítil þúfa, hefur tekið við rekstri áfangaheimilisins Dyngjunnar í Snekkjuvogi 21. Heimilið er fyrir konur sem sem hafa lokið meðferð vegna fíknar í áfengi og/ eða önnur vímuefni en þurfa áframhaldandi stuðning til að fóta sig, í allavega þrjá mánuði en stundum lengur, eins og segir í færslu á Facebook-síðu Þúfunnar.

Heimilið heitir núna Þúfan en alls geta um 10 konur dvalið þar samtímis. Þær skipta með sér þrifum og matseld og styðja hver aðra til betra lífs.

Markmið nýja félagsins er að skapa frið um heimilið og veita konunum sem þar búa öruggt skjól. Þá hefur félagið uppi áform um að efla innra starfið, fræðslu og stuðning, til að mynda við mæður, auk þess að tengja saman heimilið og önnur úrræði.

Erla Björg Sigurðardóttir, félagsráðgjafi MA með sérfræðiréttindi á sviði félagsþjónustu og vímuefnavanda, var nýlega ráðin sem framkvæmdastjóri Þúfunnar. Erla hefur starfað sem áfengisráðgjafi og á áratuga starfsferil innan velferðarþjónustu sem félagsráðgjafi. Hún hefur komið að og stjórnað ýmsum verkefnum fyrir Reykjavíkurborg, sem tengjast úrræðum fyrir fólk í fíkn, meðal annars átti hún stóran þátt í að koma Grettistaki á laggirnar hjá borginni. Hún var síðast sviðsstjóri velferðarsviðs á Höfn í Hornafirði og er lektor í félagsráðgjöf við HÍ.

Erla Björg Sigurðardóttir
Mynd: Facebook

Þúfan leitar eftir stuðningi einstaklinga og fyrirtækja til að hægt sé að tryggja daglegan rekstur og hrinda metnaðarfullum áætlunum í framkvæmd.

Hægt er að styrkja félagið með:

*1000 króna framlagi á mánuði með beingreiðslu af bankareikningi eða greiðslukorti.

*3000 króna framlagi á mánuði með beingreiðslu af bankareikningi eða greiðslukorti.

*Eða velja frjálst framlag og leggja einu sinni inn á styrktarreikninginn: 0515-14-007651 kt. 500223-1460

Þúfan hvetur sérstaklega allar konur sem hafa náð árangri í baráttunni við fíkn, eða eiga einhvern nákominn sem er í eða hefur verið í þeirri stöðu, að hugsa til Þúfunnar með sól í hjarta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Verðmætur suðumaður og vel liðinn rekinn fyrirvaralaust úr starfi eftir dularfullt tölvuhvarf – Riftunin reyndist þó dýrkeypt

Verðmætur suðumaður og vel liðinn rekinn fyrirvaralaust úr starfi eftir dularfullt tölvuhvarf – Riftunin reyndist þó dýrkeypt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fyrrum forstjóri CIA segir að áætlun Trump varðandi stríðið í Úkraínu sé „barnaleg og ófullkomin“

Fyrrum forstjóri CIA segir að áætlun Trump varðandi stríðið í Úkraínu sé „barnaleg og ófullkomin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lindakirkju barst dularfullt bréf – „Olli þó smá vangaveltum“

Lindakirkju barst dularfullt bréf – „Olli þó smá vangaveltum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Guðmundur var sviptur lækningaleyfi en segist einfaldlega hafa tilkynnt símaþjónustu til landlæknis -„Þeir eiga að kunna lögin“

Guðmundur var sviptur lækningaleyfi en segist einfaldlega hafa tilkynnt símaþjónustu til landlæknis -„Þeir eiga að kunna lögin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Spæjarastofan PPP stal líka gögnum frá stórum þrotabúum – „Merkilegir póstar ekki tengdir málum“

Spæjarastofan PPP stal líka gögnum frá stórum þrotabúum – „Merkilegir póstar ekki tengdir málum“