fbpx
Þriðjudagur 14.maí 2024
Fréttir

Hryllingur á brúðkaupsnótt – Réttað verður í óvenjulega óhugnanlegu heimilisofbeldismáli í ágúst

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 23. júlí 2023 15:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður situr undir ákæru um einstaklega hrottafullt og níðingslegt ofbeldi gegn eiginkonu sinni, nauðganir og misþyrmingar. Réttað verður í málinu, sem er um nokkur atriði óvenjulegt, í næsta mánuði.

Nýlega vakti Vísir athygli á því að aðalmeðferð í þessu máli er fjórir dagar (þetta blasir við ef könnuð er dagskrá Héraðsdóms Reykjaness á vefsíðu dómstólanna) sem bendir til að málið sé afar umfangsmikið, en það hefur helst verið í stórum fíkniefnamálum, morðmálum og flóknum fjársvikamálum sem réttarhöld hafa orðið lengri en einn dagur. Aðalmeðferðin verður dagana 14. til 18. ágúst við Héraðsdóm Reykjaness.

Annað sem vekur athygli og er óvenjulegt í heimilisofbeldismálum er að hinn ákærði situr í gæsluvarðhaldi. Þann 12. júlí síðastliðinn framlengdi Héraðsdómur Reykjaness gæsluvarðhald yfir manninum til 9. ágúst. Maðurinn kærði úrskurðinn en Landsréttur staðfesti hann. Í gæsluvarðhaldsúrskurðinum kemur fram að maðurinn var handtekinn seint í febrúar á þessu ári þegar tilkynnt var um ofbeldi á heimili hans og eiginkonunnar. Hlaut konan þá lífshættulega áverka af árás mannsins. Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan þá, eða í um hálft ár. Hann hefur að stærstum hluta neitað sök og segir konuna hafa ráðist á sig. Auk þess segist hann vera þolandi í málinu en ekki konan.

Árás á brúðkaupsnótt – nauðganir í endaþarm

DV fjallaði um ákæruna gegn manninum þann 6. júlí síðastliðinn. Um er að ræða 13 ákæruliði sem lýsa meintu hrottalegu ofbeldi mannsins gagnvart konunni yfir fjögurra ára tímabil, frá 2019 til 2023.

Í fyrsta ákærulið er lýst atviki frá laugardeginum 25. febrúar á þessu ári. Þar segir að maðurinn hafi veist að konunni að morgni dags og haft við hana kynferðismök önnur en samræði án hennar samþykkis. Hann hafi slegið hana ítrekað í andlit og höfuð, kastað innanstokksmunum í höfuð hennar, hrint henni í gólfið og víðsvegar sparkað í og traðkað á líkama hennar þar sem hún lá, skyrpt á hana og haldið henni fastri í gólfinu. Hann hafi lamið hana og klipið á nára- og kynfærasvæði, rifið utan af henni buxur og nærbuxur og stungið hendi eða öðrum hlut ítrekað djúpt inn í leggöng hennar og endaþarm. Konan hlaut lífshættulega áverka af þessari árás sem lýst er í ákæru. Hafi hún m.a. misst hægðir við atlöguna, auk þess að hljóta þrjú rifbeinsbrot og ýmsa aðra áverka.

Í ákærunni er einnig lýst líkamsárás og nauðgun um viku áður, þ.e. 17. febrúar. Veitti maðurinn konunni þá mikla áverka með því að berja hana og sparka í hana, meðal annars.

Maðurinn er einnig sakaður um alvarlega líkamsárás á konuna þann 13. mars 2022 en þá réðst hann á hana inn í stofu á heimili þeirra, kýldi hana og sparkaði í hana, kastaði í hana logandi sígarettum, svívirti hana með niðrandi orðbragði og tók hana kyrkingartaki með báðum höndum.

Maðurinn er einnig sakaður um að hafa ráðist á konuna á nýársdag 2023 og nauðgað henni í endaþarm.

Miklar höfuðkvalir eftir ofbeldi á Ljósanótt

Allar árásirnar eru sagðar hafa farið fram á heimili hjónanna nema árás mannsins á konuna á brúðkaupsnótt þeirrra sem var á stað sem er ótilgreindur í ákæru. Er hann þá sagður hafa veist að henni með ofbeldi, slegið hana í upphandlegg, hellt kampavíni yfir brúðarkjól hennar og óskað eftir hjónaskilnaði.

Í maímánuði árið 2020 er maðurinn sagður hafa ráðist á konuna inni í eldhúsi, löðrungað hana, hrint henni í gólfið og sparkað í hana klæddur vinnuskóm með stáltá.

Í sama mánuði er maðurinn sakaður um kynferðisbrot gagnvart konunni er hann neyddi hana til munnmaka svo hún kastaði upp. Einnig nauðgaði hann henni í endaþarm.

Mörg önnur meint ofbeldistilvik eru tilgreind í ákærunni og er maðurinn meðal annars sakaður um að hafa beitt konuna ofbeldi á heimili þeirra á Ljósanótt 2019. Sló hann hana í andlit með flötum lófa og krepptum hnefa og veitti henni hnefahögg í magann svo hún missti andann og féll í gólfið. Sparkaði hann þá í líkama hennar og skellti höfði hennar í flísalagt gólfið. Hafði konan miklar höfuðkvalir eftir þessa árás.

Héraðssaksóknari krefst þess að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.

Gerð er miskabótakrafa fyrir hönd konunnar um bætur upp á 9 milljónir króna.

Sem fyrr segir verður réttað í málinu við Héraðsdóm Reykjaness dagana 14. – 18. ágúst. Þinghald verður lokað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hættulegasti hlutur heims – Drepur einstakling á tveimur dögum sem horfir á hann í fimm mínútur

Hættulegasti hlutur heims – Drepur einstakling á tveimur dögum sem horfir á hann í fimm mínútur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Víkingur Heiðar blandar sér í þjóðfélagsumræðuna – „Ég held að þjóð þín sé reyndar komin með nóg af gífuryrðunum“

Víkingur Heiðar blandar sér í þjóðfélagsumræðuna – „Ég held að þjóð þín sé reyndar komin með nóg af gífuryrðunum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fyrrum fjármálastjóri dró aha.is fyrir dóm – Sagðist eiga inni orlof en var á móti sakaður um að hafa ofreiknað eigið orlof með bókhaldsbrögðum

Fyrrum fjármálastjóri dró aha.is fyrir dóm – Sagðist eiga inni orlof en var á móti sakaður um að hafa ofreiknað eigið orlof með bókhaldsbrögðum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Nöfn unga fólksins sem lést í banaslysinu á Eyjafjarðarbraut

Nöfn unga fólksins sem lést í banaslysinu á Eyjafjarðarbraut