fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

„Ég tek hattinn ofan fyrir þessu fólki“

Máni Snær Þorláksson
Fimmtudaginn 7. júlí 2022 11:00

Birgir Jónsson forstjóri Play. Mynd/Stefán

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Farþegafjöldi PLAY jókst um 55% milli maí og júní. Í maí flugu 56.601 farþegi með flugfélaginu en í júní flugu alls 87.932 farþegar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá flugfélaginu. „Það er til marks um mikinn vöxt að þessi fjöldi jafnast nánast á við heildarfjölda farþega ársins 2021 á fyrstu sex mánuðum starfseminnar,“ segir í tilkynningunni.

Þá jókst sætanýting í júní einnig en sætanýtingin var 79,2% í mánuðinum, samnaborið við 69,6% sætanýtingu í maí. Flugfélagið telur þessa sætanýtingu mjög ásættanlega í ljósi þess að júní var fyrsti mánuðurinn þar sem tengiflugsáætlun yfir Atlantshafið var komin í fullan gang auk þess sem mikið var um flug á nýja áfangastaði.

Stundvísi flugfélagsins í júní mældist 79,1%. Þrátt fyrir að það sé ekki í samræmi við viðmið PLAY í venjulegu árferði þá telur flugfélagið að tölfræðin sé fullnægjandi í ljósi þess að annars vegar var það að stækka tengislugsleiðakerfið og hins vegar vegna mikillar manneklu og lágs þjónustustigs á flugvöllum í Evrópu.

„Hraður bati á sviði alþjóðaflugs um allan heim og skortur á starfsfólki í greininni eftir heimsfaraldur hefur valdið talsverðum töfum í leiðarkerfum flugfélaga víðsvegar um heim og þar er PLAY ekki undanskilið. Af þessum orsökum hefur fallið til kostnaður og röskun á ferðatilhögun farþega félagsins. Þessi kostnaður er staðreynd í flugrekstri og er því stærð sem sett er inn í rekstraráætlanir PLAY. Sá kostnaður sem félagið hefur orðið fyrir rúmast innan þess sem gert hefur verið ráð fyrir í áætlunum félagsins.“

Ný flugvél og eldsneytisvarnastefna

Í tilkynningunni er fjallað um eldsneytisvarnastefnu PLAY en á fyrsta ársfjórðungi þessa árs hóf flugfélagið að innleiða stefnuna. „Fyrsta skrefið var varfærið og verið er að stíga það næsta, nú þegar ákveðið hefur verið að bæta í eldsneytisvarnirnar,“ segir í tilkynningunni en með  viðbótinni er félagið að tryggja 30% olíunotkunar sinnar á næstu þremur mánuðum og 15% til næstu fjögurra til sex mánaða.

PLAY segir þetta skref vera rökrétt framhald á innleiðingu stefnu félagsins í eldsneytisvörnum.

Þá er einnig fjallað um sjöttu flugvél flugfélagsins, sem er frá Airbus og er af gerðinni A320neo, en vélin kom til landsins í lok júní og hóf farþegaflug fyrir skömmu. Alls er flugfélagið nú með þrjár slíkar vélar í notkun en hinar þrjár vélarnar eru af gerðinni Airbus A321neo.

Stoltur af starfsfólkinu á erfiðum tímum

Birgir Jónsson, forstjóri PLAY, segir í tilkynningunni að síðastliðinn júnímánuður marki enn ein tímamótin í sögu flugfélagsins. „Við starfræktum loks tengiflugsleiðarkerfið allt eins og það leggur sig og það með sex flugvélar í notkun. Það er frábært að sjá einingarkostnaðinn snarlækka þegar við höfum náð þessum skala í starfseminni,“ segir Birgir.

„Nú höfum við náð markmiðum okkar um að einingarkostnaður án eldsneytis (CASK ex-fuel and emissions) sé minni en fjögur sent, í takt við þær áætlanir sem félagið hefur þegar kynnt. Þetta skiptir sköpum þegar kemur að því að bjóða upp á lægsta verðið á mörkuðum okkar. Þar ræður lágur grunnkostnaður úrslitum. Tölfræðin núna er að staðfesta grundvallarhagkvæmni viðskiptamódelsins sem lagt var upp með og hvetur okkur til dáða að keyra kostnað enn frekar niður eftir því sem við höldum áfram að vaxa.“

Birgir segir að það sé búið að reynast erfitt fyrir flugrekstraraðila í Evrópu að skala starfsemina aftur upp og að það hafi bitnað á PLAY eins og öllum öðrum. Hann segir að vegna þessa sé hann afar stoltur af starfsfólki PLAY á flugrekstrarsviði, tæknifólkinu, áhafnarmeðlimum og þjónustuteyminu.

„Ég get ekki annað en dáðst að því hvernig þau hafa tryggt stundvísi og sem besta upplifun fyrir farþega okkar á tímum þar sem við erum að stækka mjög hratt og ástandið er eins erfitt á alþjóðaflugvöllum og raun ber vitni. Ég tek hattinn ofan fyrir þessu fólki og öllu starfsfólki PLAY og þakka þeim fyrir þrotlausa vinnu og metnað.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Hvalur sprakk í tætlur
Fréttir
Í gær

Sanna birtir ferðasögu: Var lengur í strætisvagninum en í fermingarveislunni – „Það var gott að fá þessa strætóreynslu“

Sanna birtir ferðasögu: Var lengur í strætisvagninum en í fermingarveislunni – „Það var gott að fá þessa strætóreynslu“
Fréttir
Í gær

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”