Þetta hefur Morgunblaðið eftir Ólafi G. Flóvens, jarðeðlisfræðingi og fyrrum forstjóra Íslenskra orkurannsókna. Hann sagði að mjög sterkar sannanir séu taldar vera fyrir að það hafi verið gas sem olli landrisinu 2020 að mestu eða öllu leyti en það sé ekki endilega svo núna.
„Skjálftarnir ekki skaðlegir „Þessir skjálftar eru bara pirrandi fyrir íbúa en ekki skaðlegir. Raunverulega ógnin er fyrst og fremst eldgosið, þá er spurning hvar það kemur upp og svo hvert hraunið gæti runnið,” er haft eftir honum.
Hann sagði ótvírætt að kvika sé að safnast undir Reykjanesi og hún valdi landrisi. Á fimmtán til tuttugu kílómetra dýpi undir Fagradalsfjalli safnist kvika fyrir og gas frá henni geti verið að leita upp og þá í átt að Svartsengi. Ekki sé hægt að útiloka að hluti af kvikunni, ekki bara gasið, leiti upp undir Svartsengi og valdi landrisi þar. Allt eru þetta hættumerki að sögn Ólafs.
„Við vitum að þarna er leið, að minnsta kosti fyrir gas, undir jarðhitakerfinu, svo það er vissulega hætta á eldgosi þarna og sú hætta er eflaust veruleg því eitthvað er þessi kvika að leita,“ sagði hann.
Hann sagði einnig að ef hraun komi upp á óheppilegum stað sé Grindavíkurbær í verulegri hættu en bærinn er byggður á ungu hrauni.